19 dagar i heimfor
Hæ aftur
Ég hef ákveðið að segja ykkur aldrei hvenær ég ætli að koma með næsta blogg því að ég hef aldrei rétt fyrir mér. Þetta er samt líklega næstsíðasta bloggið mitt anyway þar sem ég á minna en þrjár vikur eftir her í Nýja Sjálandi. Thetta blogg er styttra en venjulega.. veit ekki hvad kom fyrir mig!
Ég man ekki hvað ég gerði í vikunni eftir að ég kom heim frá Rotorua. Surprise, surprise! Minnir bara að það hafi verið skóli eins og venjulega. Ég man ekkert skemmtilegt sem gerðist í skólanum svo það styttir frásögnina slatta. Jei.
Ég man bara að ég fór á kajak í þeirri viku. Hostfjölskyldan mín á tvo kajaka og hérna rétt hjá er bátaklúbbur eða hvað sem það kallast. Semsagt svona lítil bryggja bara við endann á götunni minni þar sem fólk er með báta og svoleiðis. Pínu töff. Ég og Mitchell tókum kajakana þangað eftir skóla einn daginn . Það var fjara svo að vatnið var frekar grunnt en þetta var æææði. Allt öðruvísi en að kajaka í Milford Sound eða Lake Wanaka samt þar sem þetta var á sjónum og inní borginni eiginlega. Við sáum allavega mengunina í vatninu. Vatnið var samt alveg stillt og ég gat séð svona fullkomna spegilmynd í vatninu af Mitchell á kajaknum. Mig langaði svo að taka myndir af því en ég tók ekki myndavélina því ég vildi ekki að hún blotnaði. Við fórum fyrst framhjá öllum bátunum og svoleiðis. Mitch datt svo í hug að reyna að kajaka upp pííínulitla á. Það hefði verið hægt ef það væri flóð, en í fjöru var þetta varla á, bara lítil spræna haha. Það var bara þykkt lag af drullu þarna í kring en hann ákvað nú samt að reyna og ég fór á eftir honum. Við vorum basically að kajaka á landi. Það var bara smá vatn svo að kajakinn gæti flotið en við ýttum okkur áfram með því að róa í drullunni bara. Mitch festist auðvitað en mér tókst að fara aftur á bak útúr þessu og út á vatnið aftur. Ég fór svo að hjálpa honum og þurfti að labba í drullunni til þess. Hún var ótrúlega djúp og náði mér upp á mið læri! Við þurftum svo að róa alla leið til baka, sitjandi á hnjánum til að kajakarnir yrðu ekki drullugir. Þá var orðið frekar dimmt. Vatnið virtist svart en var ennþá alveg kyrrt svo við sáum himininn speglast í því. Frekar scary stundum. Þó það væri alveg logn og kyrrt þar sem við vorum þá heyrðum við í þrumum og sáum eldingar lengst í burtu. Fannst það alveg magnað. Sáum líka pínulitla hákarla!
Frekar löng lýsing á þessu en þetta var allavega mjög gaman og við komum bæði heim öll út í drullu.
Helgina eftir það fór ég til Mangawhai með Elju frá Belgíu, Ebbu frá Svíþjóð og hostfjölskyldu Ebbu. Thetta er staður norður af Auckland og fjölskylda Ebbu á svona sumarhús þar. Elja og Ebba voru að gera 40 hour famine. Það er til styrktar góðgerða og þeir sem taka þátt þurfa að gera eitthvað í 40 klst og fá aðra til að styrkja sig. Elja og Ebba slepptu því að borða í 40 klst. Hostbróðir minn var að gera það sama nema hann mátti ekki tala í 40 klst.
Ég var semsagt sú eina af okkur þremur sem mátti borða þessa helgina haha. Við gerðum eiginlega ekkert þarna. Ég bjóst við að sjá eitthvað af staðnum en við fórum ekki einu sinni út úr húsi. Ég verð að viðurkenna að mér fannst það mjög svekkjandi. Stelpurnar voru of svangar til að gera eitthvað haha. Við eyddum bara helginni í að slappa af og horfa á myndir og svoleiðis. Ég notaði svo hvert tækifæri til að borða fyrir framan stelpurnar sem lifðu bara á þrúgusykri og vatni.
Skólavikan þar á eftir var frekar róleg. Í geography, sem er leiðinlegasta fagið mitt hér, horfðum við á Avatar og þurftum þrjá daga til þess haha. Það rigndi líka stanslaust þá vikuna og það hefur varla hætt að rigna síðan. Veturinn hér er semsagt frekar blautur heldur en kaldur.
Svoooo kom önnur helgi. Það var komið að síðasta AFS campinu minu! Við komum þangað rétt eftir 7 á föstudagskvöldinu. Það var mjög gott að hitta fólkið aftur. Margir þarna voru líka í Suðureyjarferðinni og það var æði að sjá þau öll aftur. Við byrjuðum á einhverjum nafnaleik, átum svo eins og alltaf á AFS camps og kvöldið fór svo bara í spjall og eitthvað.
Laugardagurinn var svo aðaldagurinn. Ég man ekki í hvaða röð við gerðum allt en mig minnir að við höfum byrjað á orientation beint eftir morgunmat. Vorum í nokkrum hópum að tala um árið okkar, hvað þarf að gera áður en við förum heim og allar breytingar sem gætu hafa átt sér stað heima meðan við vorum hér. Það gerði allt mun raunverulegra og ég byrjaði svona að trúa því að ég er í alvörunni að fara heim bráðum og að dvölin mín hér er næstum búin. Það fyrsta sem maðurinn sem var með minn hóp sagði var: „Face it. It´s real. You´re going home." Þetta var semsagt frekar depressing en hjálpaði mér nú samt held ég.
Tókum tvo eða þrjú svoleiðis sessions og átum á milli að sjálfsögðu. Eins og ég hef sagt áður þá held ég að AFS sé virkilega að reyna að standa undir nafni sem Another Fat Student.
Þetta camp var alveg á ströndinni bara og eftir að við vorum búin í orientation þá löbbuðu allir niður. Þetta var ótrúlega fallegt en frekar kalt. Læt bara myndirnar tala.

Eg og Elja
Eg og Pierre fra Frakklandi

Dagurinn fór svo bara í spjall og leiki og svoleiðis. Við spiluðum svo blak og fótbolta og auðvitað byrjaði að rigna. Um kvöldið voru svo allir að læra að segja eitt og annað á mismunandi tungumálum. Mjööög fyndið og mikið hlegið!
Eftir kvöldmat fórum við svo í hóp pictionary. Hópnum var skipt í tvennt svo við vorum í tveimur stórum liðum. Margir urðu mjög spenntir haha og flestir voru öskrandi og svona. Það var svo alveg eins þegar við skiptum yfir i actionary. Svo róaðist allt og við spjölluðum bara allt kvöldið, horfðum á slide show af myndum ú South Island Tour og skrifuðum í AFS árbækur og fleira. Við máttum vaka alla nóttina ef við vildum. Ég sofnaði samt um kl 5, liggjandi í kúlu á tveimur stólum með svefnpokann minn alveg yfir haus. Vaknaði svo hálftíma seinna við að allir væru að horfa á mig og tala um að ég væri nógu lítil til að passa á tvo stóla. Frábært!

Eg og Moritz. Til hvers ad nota sko?
Einhver leikur
Blak og tvofaldur regnbogi. Nice.
Pictionary
Haha kosy
Á sunnudeginum vöknuðu allir dauðþreyttir og við fórum í morgunmat. Eftir það var bara þrif og svoleiðis og svoooo var komið að kveðjustund. Alveg eins og á midstay camp fórum við í einn stóran hring. Ein manneskja byrjaði að knúsa manneskjuna hægra megin við sig og labbaði svo hringinn og knúsaði alla. Næsta manneskja fór af stað beint á eftir svo það endaði þannig að allir knúsuðu alla. Við sem vorum í mínum hóp í Suðureyjarferðinni sungum Maori lagið sem við sungum alltaf þar, frekar töff. Svo var miiikið grátið. Þetta var í síðasta skipti sem ég sé marga af AFS vinum mínum og ég trúi því varla. Eftir mjög erfiða kveðjustund keyrðum við heim, flestir ennþá grátandi.
Hvernig verður þá að kveðja nýsjálensku vini mína sem ég sé á hverjum degi?
Sunrise

Pierre og eg haha
Knushringur
Allur hopurinn
Eg setti svona margar myndir fra end of stay camp thvi eg a engar adrar myndir til ad setja i thetta blogg. Fyrirgefid thad.
Svo var meiri skóli. Allir voru alltaf að minna mig á það að ég væri bráðum að fara heim. Ekki gaman skal ég segja ykkur. Ég hef hægt og hægt minnkað skólavinnuna mína hér. Það eru sum verkefni sem eru due eftir að ég er farin eða rétt áður en ég fer svo ég þarf ekki að gera allt í skólanum núna. Sögukennarinn minn og landafræðikennarinn minn sögðu mér líka að njóta frekar síðustu viknanna minna hérna heldur en að vera að hafa áhyggjur af ritgerðum og prófum. Mjög nice af þeim finnst mér. Í outdoor education erum við enn að spila badminton og læra íþróttasálfræði (veit ekkert hvað það heitir á íslensku en mér fannst þessi þýðing næstum meika sens. ) Ég er ekkert svo slæm í badminton og send mig vel í öllu nema uppgjöfinni (heitir það í alvöru uppgjöf eða er ég að rugla?)
Í P.E, sem er btw íþróttir, erum við að búa til æfingaprógröm sem er frekar töff bara. Ég ætla að búa mér til prógram sem ég get notað eftir að ég kem heim. Btw þýðir btw by the way haha. Mig minnir að einhver hafi spurt.
Næsta helgi var svo bara róleg. Ég fór í matarboð hjá bróður hostpabba míns á laugardagskvöldinu. Dóttir hans ætlar með AFS til Frakklands á næsta ári held ég og þau höfðu einhverjar spurningar og svona. Svo kom eitthvað fleira fólk og þetta var bara mjög fínt. Við krakkarnir fórum út í bílskúr að spila pool. Ég veit ekki af hverju, en við gátum ekki hætt að hlæja að orðinu ´flannel´ haha. Mjöög fyndið.
Aaallavega, ég sver það að fólk heldur að ég sé þroskaheft eða eitthvað af því ég kem frá öðru landi. Ein stelpan þarna byrjaði að útskýra fyrir mér fótbolta og var svo frekar hissa þegar ég sagði að fótbolti væri líka spilaður á Íslandi. Sama stelpa spurði mig hvort ég hefði séð poolborð áður og ég var svo líka spurð hvort mér fyndist gaman að hanga með vinum mínum. Ég held að sumt fólk haldi að Ísland sé fullt af frumbyggjum sem búa í snjóhúsum og borða hvali. Fólk sem hefur hitt mig veit hins vegar núna að þannig er það ekki.
Jeee þetta var löng helgi. Drottningin átti afmæli í apríl og það var haldið uppá það í júní með því að hafa public holiday á mánudegi! Haha ég elska Nýja-Sjáland.
Ég tók mér svo líka frí í skólanum á þriðjudeginum. Hostmamma mín þurfti ekki að vinna svo að við nýttum daginn og fórum og keyptum það sem þurfti að kaupa áður en ég fer heim. Við sendum 5kg box af fötum heim til Íslands og svoleiðis. Fínt að klára það allt og minnka stressið.
Síðasta helgi var bara fín. Ég hékk bara smá með Elju og við fórum í kveðjumatarboð til Alice frá Frakklandi. Ég sá þar ljóshærða asíska stelpu sem var örugglega hápunktur dagsins, án gríns. Veit ekki hvort hún litaði á sér hárið eða ekki samt. Þetta var bara mjög fínt kvöld og góður matur. Við eyddum mestum tíma í að spila jungle speed og fooseball haha. Ég og Elja fórum svo heim til mín eftirá og við fórum í heitapottinn í rigningunni sem var æði! (Ok, maybe var það hápunktur dagsins, en ljóshærður asíubúi er ekki eitthvað sem maður getur haft útí garði). Hún gisti svo hjá mér. Á sunnudagskvöldinu var svo síðasti AFS fundurinn minn! Kveðjufundur fyrir okkur sem erum að fara heim núna í byrjun júlí. Við fengum viðurkenningar fyrir þátttöku og gáfum svo hostfjölskyldum okkar og trúnaðarmönnum þakkarkort og gjafir. Gjafnirnar voru frá AFS en við völdum þær. Flestar fjölskyldurnar fengu tré haha en eg gaf minni myndaramma sem þau báðu um og fræ fyrir blóm sem kallast Iceland poppy! Vissi ekki einu sinni að það væri til.
Restin af fundinum var svo bara eins og alltaf; eitthvað fólk talaði og svo átum við bara og spjölluðum. Í síðasta skipti. Mér er svosem sama þar sem þessir fundir voru vanalega mjög leiðinlegir. Þetta var samt frekar sad.
Hmm fyrir utan skóla og helgar þá hef ég örugglega frá ýmislegu að segja. Til að koma með fréttir af tánni minni þá er hún orðin góð. Fyrir þá sem ekki muna þá fékk ég sýkingu í tána í febrúar og það tók langan tíma að lagast. Það kæmi mér ekki á óvart ef ég hefði brotið hana líka því hún var mjög aum í langan tíma, greyið. Hún er allavega góð núna og lítur út eins og tá aftur svo að það er gott haha. Það er samt ekki í eina skiptið sem ég hef slasað mig síðan ég kom hingað. Þegar ég fór til Piha í apríl (ég sagði frá því í síðasta bloggi) tókst mér að skella bílhurðinni á hausinn á mér. Ég var með góðan marblett bakvið eyrað í einhverja daga eða vikur eftirá. Í sömu viku eða vikunni á eftir var ég bara að labba um skólann á skólatíma, sem hlýtur að teljast eðilegt, og einhver sparkaði frekar stórum steini beint í fótinn á mér. Hann lenti á þarna kúlunni við öklann og það heyrðist hátt ‚klonk'. Gaman að því. Ég bólgnaði smá og er enn marin!
Þetta eru engin stórslys en Áslaugu sys hlýtur að líða betur núna.
Hostbræður mínir eru ekkert smá fyndnir. Þessi yngri, Chris, er mjög klár. Þegar hann heyrði að stafurinn c væri ekki í íslenska stafrófinu var hann ekki lengi að fatta að hann getur sagt ‚bith' í staðinn fyrir ‚bitch' án þess að vera skammaður! Um daginn var hann svo kominn upp í rúm en vildi fá eitthvað að borða. Hann kallaði þess vegna fram: „Hey foreigner! Make me a sandwitch or I'll call immigration!"
Sumir hefðu kannski móðgast en mér fannst þetta bara fyndið.
Aaanyway. Þið sem þekkið mig vitið líklega að ég er skíthrædd við kóngulær. Hér á Nýja Sjálandi er víst bara ein tegund sem getur bitið. Kannski eru fleiri en white tail er sú algengasta. Hún er samt ekkert stór, bara ógeðsleg. Ég hafði aldrei séð svoleiðis kónguló fyrr en fyrir um viku síðan. Það var ein sitjandi á stofuloftinu hér heima! Þar sem ég hef að hluta til komist yfir hræðsluna við kóngulær þá náði ég auðvitað í myndavélina mína, stóð uppi á stól og reyndi að ná mynd af kvikindinu. Það tókst reyndar ekki en ég reyndi allavega. Núna í þessari viku sá ég svo aðra svona kónguló! Ég lá á gólfinu inni í stofu að horfa á sjónvarpið eins og ég geri alltaf. Ég sá svo eitthvað hreyfast ca 20 cm frá andlitinu á mér og settist upp á ljóshraða þegar ég sá að þetta var kónguló. Ég sat bara eins og fáviti og benti þangað til hostmamma mín tók eftir henni og kom og drap hana fyrir mig.
Þessar kóngulær geta ekki drepið sam en þð er víst mjööög vont þegar þær bíta.
Mér dettur ekkert mikið annað í hug. Ég smá byrjuð að freak-a út yfir því að vera að fara heim. Ég vil ekki að dvölin mín hér endi! Ég hefekkert mikið planað fyrir síðustu vikurnar, annað en að eyða tíma með vinum mínum og reyna að njóta þess að vera hér.
Síðasta skóladaginn minn, 2. júlí, er svo The Ball. Það er svipað og prom í Ameríku held ég. Ég var fyrst ekkert svo spennt fyrir því en ég er farin að hlakka svona smá til núna. Þetta verður örugglega mjög gaman þó þetta sé formlegt.
Allt í skólanum snýst um þetta ball núna. Mér finnst það hafa skemmt smá fyrir mér samt því að allir eru að telja niður dagana í ballið og tala ekki um annað, en það er bara 5 dögum áður en ég fer heim! Svo að síðustu 2 vikurnar verða pretty much bara bið eftir ballinu og undirbúningur fyrir það og svo hef ég 4-5 daga áður en ég flýg heim. Thetta verdur samt gamaaaan!
Talandi um að fljúga þá fékk ég flugplanið mitt fyrir löngu síðan ég sagði ykkur aldrei frá því. Afsakið það.
Ég flýg héðan klukkan 23:15, miðvikudaginn 7. júlí á nýsjálenskum tíma. Það er semsagt klukkan 11.15 sama dag á íslenskum tíma. Ég flýg í gegnum Hong Kong og lendi í London klukkan 14.35 á staðartíma. Þar tekur við bið í 6 klst ca. Næsta flug er svo klukkan 21.10 og ég lendi á Keflavíkurflugvelli klukkan 23.10, fimmtudaginn 8.júlí. Á nýsjálenskum tíma er það klukkan 11.10 á föstudagsmorgni haha svo þetta er um 36 tíma ferðalag. Ég vona bara að Zac Efron festist ekki á skjánum hjá mér aftur eins og gerðist á leiðinni hingað.
Ég er samt ekkert tilbúin til að fara til Íslands. Ég hlakka reyndar til að koma heim og hitta fjölskylduna mína aftur og sjá alla vini mína. Það verður æði að koma heim í íslenskt sumar og grill, sundlaugar og vesturbæjarís og ég verð að viðurkenna að ég hlakka smá til að byrja í skólanum aftur. Mig langar samt ekkert til að fara héðan! Hér á ég eiginlega annað líf og það verður mjög erfitt að fara frá öllu. Ég nána vini og ég hef ekki hugmynd um hvernig ég á að geta kvatt þá. Það mun örugglega verða með því erfiðasta sem ég hef gert. Ég hefði ekkert á móti því að vera hér aðeins lengur. No offence haha.
En þetta er allt í bili. Ég mun örugglega skella inn einu bloggi í viðbót áður en ég fer.
Kveðjur úr kuldanum og rigningunni í Auckland
Sakna ykkar ekkert svo mikið
-Thora Bergsveinsdottir
"Blogg eftir viku" var bara djok
Jaá halló
Blogg eftir suðureyjarferð segiði. Góóð spurning.
Mamma, manstu þegar ég var með gott minni og mundi allt? Ég held það sé ekki lengur þannig. Ég man nefnilega ekki næstum allt sem ég hef gert eftir að ég kom heim frá Suðureyjunni. Það hlýtur að vera frekar alvarlegt að muna ekki eitthvað sem maður gerði fyrir meira en mánuði. Nú er maí meira að segja næstum búinn! Það er bæði gott og slæmt. Slæmt af því að það þýðir að dvölin mín hér er næstum búin og ég fer bráðum heim. Gott af því að gaurinn fyrir maí í nýsjálenska slökkviliðsmannadagatalinu mínu er ekki með six pack og gaurinn fyrir júní er mikið betri.
Ég ætla nú samt að gera mitt besta og reyna að segja frá þessu mikilvægasta... og kannski einhverjum óþarfa smáatriðum líka.
Nýja hostmamma mín, Annette, sótti mig semsagt á flugvöllinn, við skutluðum Elju heim og náðum í dótið mitt í leiðinni. Um 20 mínútum seinna var ég komin heim - FLUTT. Aftur. Nýja fjölskyldan mín er samt mjög fín og ég er ekkert smá ánægð! Á tvo hostbræður, Chris sem er 11 ára og Mitchell sem er 14 ára, og hostsystur sem er núna í Þýskalandi með AFS. Bræðurnir eru tja.. ekki mjög rólegir haha en þeir eru skemmtilegir og ég er mjög sátt bara. Þau eiga líka einn hund sem er æði og kött sem slefar. Kötturinn sefur alltaf inní mínu rúmi en fyrsta daginn reyndi hún að fela sig fyrir mér með því að stinga hausnum undir rúmið mitt en restin stóð út. Frekar heimskur köttur. Hostmamma mín rekur svo hundasnyrtistofu hérna heima sem mér finnst ótrúlega töff! Sé oft nokkra hunda á dag hah þegar ég kem heim úr skólanum.
Heeeelgin mín eftir ferðina var fín þrátt fyrir þreytu. Þetta var btw 17. april þeas fyrir meira en mánuði síðan. Á laugardeginum fór ég heim til Michelle (gamla húsið mitt) og hitti þar hana og e-ð fleira fólk. Áttum að gera geography homework en enduðum á að fá okkur kfc og spjalla. Ég gerði semsagt bara útlínurnar á titlinum á plakatinu okkar og var frekar stolt af mér. Fór svo snemma heim því ég var dauðþreytt eftir ferðina og var alltaf alveg að sofna, og þau kláruðu allt haha. Ég endaði á að skila ekki neinu inn fyrir þetta verkefni seeem skiptir ekki máli því ég þarf ekki einingarnar. Ég hjálpaði hinum nú samt slatta og fékk smá credit fyrir það. Var btw ein af mörgum sem skilaði engu inn.
Reyndi að unpacka eitthvað um kvöldið en það gekk voðalega hægt eitthvað. Reyndi þess vegna að klára það á sunnudeginum en fór í staðinn með hostmömmu minni að horfa á skiptinema frá Þýskalandi keppa í hestum. Það hefði verið gaman ef við hefðum actually getað séð hana keppa en þar sem við nenntum ekki að bíða í næstum 2 klst þá fórum við heim. Duglega ég kláraði að unpacka öööllu dótinu mínu. Herbergið mitt hér er frekar fyndið. Þetta er nefnilega herbergi stelpunnar sem er í Þýskalandi og veggirnir eru þaktir myndum af henni og vinum hennar, plakötum af frægu fólki (þá aðallega good looking karlkyns fólki) og Twilight myndum. Finnst frekar töff að hafa svona mikið af myndum sko! Er ekki mikið fyrir Twilight reyndar en ég verð bara að sætta mig við það að Edward Cullen fylgist með mér meðan ég sef.
Skólinn byrjaði svo á mánudeginum. Allir voru mjög þreyttir og latir eftir fríið. Eins og ég hef sagt áður þá er skólinn samt bara frekar skemmtilegur. Ég er samt óvenju löt eitthvað ég nenni ekki að gera neitt í skólanum. Held það sé aðallega því ég þarf ekkert á skólavinnunni hér að halda því að ekkert af því telur þegar ég fer heim. Það eru nokkrar ritgerðir sem ég hef ekki gert en það skiptir engu máli. Kennurunum finnst það allt í lagi og svo eru fullt af krökkum sem bara sleppa því að skrifa þær. Finnst það mjög skrýtið! Í næstum öllum fögunum mínum eru alltaf einhverjir sem sleppa bara vinnunni og komast auðveldlega upp með það. Það eru líka mjög margir sem hætta bara í skólanum núna og fara að vinna í staðinn.
Skólinn hér er heldur ekki eins krefjandi og heima. Mér finnst krakkarnir hér fá mun meiri tíma til að gera verkefnin og við lærum frekar lítið í tímum. Heima fóru tímarnir vanalega í að sitja og glósa allan tímann en hér sitja krakkarnir bara og spjalla meiri hlutann af tímanum eða bara sitja og gera ekkert. Þeim finnst skólinn samt mjög erfiður. Það er líka svolítið eins og þau hafi val um það að gera eitthvað í tímum eða ekki. Það er samt mismunandi eftir fögum. Ég er komin smáá inní það líka en hey, ég kom hingað til að aðlagast nýrri menningu haha! Ég geri samt allt sem við gerum í tímum en ég þarf ekki að taka próf og svoleiðis.
Nóg um eitthvað rugl og að einhverju aðeins áhugaverðara, held ég. Á sunnudeginum vaknaði ég frekar hás og á mánudeginum var röddin mín næstum alveg farin! Ég talaði mjög asnalega, eða bara ekki neitt, alla vikuna. Þetta var frekar léleg tímasetning því ég þurfti að segja „Eyjafjallajökull" svo oft þessa viku að orðið var farið að missa merkinguna. Það hljómar ekkert eins þegar maður segir það mjöög hægt aftur og aftur. Það bar líka mjög lítinn árangur því að enn getur enginn sagt þetta! Nokkrir geta sagt „Eyjafjalla" en enginn getur sagt „ull"! Bæði u-hljóðið og ll-hljóðið er bara eitthvað sem fólkið hér getur ekki borið fram. Ég kvarta ekki samt því ég skemmti mér yfir þessu bara.
Það voru ekki bara krakkar og kennarar í skólanum sem reyndu að segja þetta heldur líka fólk í sjónvarpinu og útvarpinu. Fréttafólkið gafst upp bara og það var alltaf talað um „the volcano in Iceland" og ekki einu sinni minnst á nafnið. Ég missti oftast af fréttunum en vinur minn sagði mér að eitt kvöldið hefðu þau skrifað nafnið á blað til að sýna fólki hvernig það væri skrifað og notuðu það og bentu á það held ég í staðinn fyrir að reyna að bera nafnið fram. Haha svo einn morguninn í útvarpinu var fólk að hringja inn og reyna að segja nafnið á fjallinu. Mig langði að hringja og koma þeim á óvart með því að bera þetta fram fullkomlega en ég gat varla talað svo ég hætti við. Seinna í vikunni, á sömu útvarpsstöð, var fólk að hringja inn og segja hvert það myndi dreifa sinni ösku ef það mætti ráða haha. (Þá var verið að meina að Ísland dreifði sinni ösku yfir Evrópu til að gefa til baka, hvert myndir þú dreifa þinni?) Freeekar fyndið.
Held það hafi ekkert annað gerst í skólavikunni. Það er komið of langt síðan og ég man ekkert hvað gerðist. Skóladagarnir virðast bara renna saman. Fór samt einn daginn með hópi af krökkum heim til vinar míns og við horfðum þar á mynd og fífluðumst eitthvað og fórum svo og keyptum franskar. Ég hef eitt alltof miklum pening í franskar (chips) hérna. Þær eru miklu betri en heima haha og allir borða þær .. alltaf.
Svo kom helgi, jei! Laugardagurinn var bara rólegur en um kvöldið var Auckland reunion fyrir fólkið úr Suðureyjarferðinni! Við fórum út að borða á ítölskum stað, ekkert smá gott! Tour manager-inn kom líka og auðvitað tók ég Bruce the Kiwi með ( fyrir þá sem ekki vita þá er hann lukkudýrið úr ferðinni - ég fékk að eiga hann). Það var ekkert smá gaman að hitta alla aftur. Þetta var samt mest allt fólk sem ég þekkti fyrir ferðina en það var samt gaman að hittast og rifja upp minningar og svoleiðis, enda alveg liðin heil vika frá því við sáumst síðast.
Elja kom svo með mér heim og við fórum í heita pottinn um kvöldið. Ekki leiðinlegt að hafa svoleiðis í garðinum! Hún gisti svo hjá mér. Daginn eftir tóku hostforeldar mínir okkur til Piha svo við gætum séð fossinn þar. Elja bjó í Piha í um 5 mánuði en hafði aldrei labbað að fossinum! Við fjögur fórum semsagt þangað með hundinn. Þetta var bara fín ganga og fossinn var ekkert smá fallegur! Við hentum svo bara Elju heim og ég man ekki hvað ég gerði restina af deginum.
Reunion!
Piha
Eg og Elja vid fossinn
Svo var meiri skóli sem var bara alveg eins og venjulega. Föstudagurinn var samt öðruvísi því ég þurfti að taka próf í P.E. Þetta var miklu svalara próf heldur en íþróttaprófin heima! PE hér er reyndar mun meira bóklegt en verklegt og flest prófin sem við tökum eru bókleg. Allavega þá fór allur bekkurinn til Mission Bay sem er strönd í Auckland East til að spila blak! Kennarinn tók leikina upp á video og ætlar svo að horfa á það aftur og dæma. Til að ná þurfum við að geta gert þrjú „shots" rétt og geta spilað vel. Ég held ég hafi örugglega ekki náð þar sem ég er alls ekki góð í blaki. Ég held ég sé mun betri núna en ég var samt en það er frekar erfitt að ná þessu prófi því að allar sendingar og svoleiðis þurfa að vera góðar og tæknin rétt. Ég skemmti mér samt vel og við höfðum slatta af tíma bara til að leika okkur að spila því við vorum þarna allan daginn. Það var líka glampandi sól og heitt sem gerist ekki oft í apríl. Betra en venjulegur skóladagur? JÁ!
Helgin eftir það var svo frekar busy. Ég held ég hafi reyndar ekki gert neitt á laugardeginum. Á sunnudeignum vaknaði ég hins vegar snemma fyrir afmælið hans Chris, hostbróður míns. Við vorum semsagt að fara með átta 11 ára stráka í klifur! Það var samt ekkert svo slæmt. Eftirá var svo smá partý heima og ég hjálpaði til með það.
Um seinnipartinn var svo fjölskylduparty hjá frænku hostmömmu minnar. Hún á nefnilega 9 systkini! Og dóttir systur hennar (heeeeld ég) átti afmæli. Hitti þar fullt af fólki og mér fannst þetta bara frekar gaman! Það voru nokkrir þarna í kringum tvítugt sem ég talaði aðallega við. Við þurftum svo að fara þaðan snemma til að fara í AFS chapter meeting. Mig langaði ekkert mikið að fara því að þessir fundir eru leiðinlegir og ég skemmti mér frekar vel í þessu fjölskyldupartýi.
Þetta var samt örugglega fyrsti AFS fundurinn sem var actually skemmtilegur! Við spiluðum endalaust lögin úr Suðureyjarferðinni og Bruce the kiwi kom með mér, að sjálfsögðu! Við fimm sem komum í júlí vorum með svona quiz night. Við skiptum öllu fólkinu í hópa og spurðum þau spurninga um löndin sem við komum frá. Ein spurningin sem ég var með var að segja nafnið á Eyjafjallajökli. Ég fékk nokkur frekar skrautleg svör haha! Eftirá vorum við svo með mat frá okkar löndum. Allir höfðu bakað eitthvað eða eldað, ég hafði hins vegar átt mjög busy dag og svo er ég alls ekki góður kokkur! Sniðuga ég fór þess vegna út í búð og keypti stóran poka af frostpinnum og tók þá með. Jáb, frostpinnar frá Íslandi, voða fyndið. Þeir slógu hins vegar í gegn og kláruðust á undan belgíska súkkulaðibúðingnum.
Svo var bara skóli, skóli. Það er komið haust hér og það er vanalega skítkalt á morgnanna og svo er byrjað að rigna aftur. Mikið. Ég elska þetta land nú samt ennþá þó að ég sakni sumarsins! Hefði ekkert á móti því að vera að komast í sumarfrí núna eins og flestir heima.
Ég held það hafi ekkert merkilegt gerst í þeirri skólaviku. Við í P.E. bekknum mínum ákváðum samt að vera fyndin einn daginn þegar kennarinn fór út úr stofunni. Það var nefnilega önnur stofa við hliðina og bara hurð á milli. Allir í bekknum fóru úr okkar stofu og yfir í hina stofuna. Við tókum dót kennarans og líka og skrifuðum allt það sama á töfluna í hinni stofunni svo að allt liti eins út. Svo í staðinn fyrir að sitja dreifð um stofuna eins og alltaf þá sátu allir í sama helmingnum af stofunni, í einni langri röð. Við héldum að kennarinn myndi gefa okkur after school detention en þegar hann loksins fann okkur fannst honum þetta bara fyndið! Mikill léttir haha og það var mikið hlegið.
Á laugardeginum fyrir þremur vikum fór ég svo niður í bæ í fyrsta skipti í laaangan tíma. Var bara að hitta einhverja krakka úr suðureyjarferðinni. Gerðum ekkert spes haha.
Á leiðinni heim þurfti ég svo að taka strætó frá lestarstöðinni því það var orðið dimmt. Ég fór upp í strætó sem ég var nokkuð viss um að væri réttur strætó og spurði gaurinn hvort hann færi að götunni sem ég bý í. Hann var asískur (eins og meiri hluti íbúa Auckland örugglega) og talaði ekki mikla ensku. Svarið sem ég fékk var einfaldlega „I turn left". Það hjálpaði mér ekki mikið þar sem að næstum allir strætóar byrja á að beygja til vinstri á leiðinni frá lestarstöðinni. Þetta var samt réttur strætó og ég komst heim nokkrum mínútum seinna, mér fannst þetta bara fyndið.
Svoooo bara meiri skóli. Ég nenni ekkert að segja frá skólanum neitt meira því að helgina 14-16. maí fór ég með hostfjölskyldunni minni til Rotorua! Þó þetta blogg sé nú þegar orðið frekar langt þá ætla ég samt að segja ykkur frá þeirri ferð til að þurfa ekki að gera það seinna.
Eg hef thad svo a tilfinningunni ad eg se ad gleyma einhverju en eg skrifa thad tha bara i naesta bloggi ef mer dettur eitthvad i hug.
Svoo Rotorua, gjoridi svo vel.
Föstudaginn 14. maí vaknaði ég klukkan 5.30 og við lögðum af stað korteri seinna. Við stoppuðum á McDonald's til að borða morgunmat sem er eitthvað sem þið heima á klakanum getið ekki gert. Leiðinleeegt! Svo eftir um það bil tveggja tíma akstur og óteljandi brandara frá Chris (yngri hostbróðir minn) komum við til Waitomo caves. Það eru mjög töff hellar þar sem maður getur séð glowworms og svoleiðis. Það er hægt að fara í black water rafting þar þar sem að maður fer í gegnum hellana á gúmmíslöngu og fer niður fossa og svoleiðis. Við gerðum það samt ekki heldur fórum bara í stuttan tour þarna um hellana og sigldum svo um og horfðum á glow worms (íslensk þýðing óskast). Þetta var mjööög töff fannst mér en mig langar ekkert smá að prófa black water rafting einn daginn.
Við keyrðum svo bara áfram og komum loksins til Rotorua. Við byrjuðum á að fara upp the gondola og fórum í luge. Þetta var alveg eins og í Queenstown nema mun betra fannst mér! Ég, Chris og Mitch (hostbræður mínir) reyndum alltaf að klessa á hvort annað og svoleiðis og einu sinni fór Mitch útaf brautinni. Við gerum enn grín að honum útaf því haha.

Thad var bannad ad taka myndir inni hellinum svo thetta var tekid thegar vid komum ut
The gondola
Luge
Rotorua
A leidinni upp aftur
Ég skemmti mér vel og við vorum mjög heppin með veður þar sem það átti að vera grenjandi rigning alla helgina.
Á leiðinni á mótelið var Mitch svo að tékka hvort hann gæti andað í gegnum nefið með röri. Hann ýtti rörinu of langt upp í nefið á sér svo það byrjaði að blæða. Freeekar heimskt haha. Við vorum ekki með neinn pappír í bílnum svo að hostmamma mín lét hann fá túrtappa. Hann sat semsagt þarna í skottinu með túrtappa í nefinu haha! Thad er mynd af thvi a facebook. Eg er ekki viss um ad hann yrdi anaegdur ef eg setti myndina i bloggid haha.
Við komum svo á mótelið. Við höfðum aðgang að tveimur heitum pottum, hitaðri sundlaug og leikvelli með tveimur trampolínum og eitthvað. Ég og Chris eyddum smá tima þarna á trampolinunum. Ég flúði svo inn þegar hann komst að því hvað ég er kitlin haha. Við horfðum svo öll á America´s Next Top Model um kvöldiðhaha og fórum svo í sundlaugina. Hún var mjög heit samt, svolítið eins og risastór heitur pottur. Samt æði : ) Ég horfði svo bara á rugby þangað til ég sofnaði. Ég á pottþétt eftir að sakna rugby menningarinnar hér! Aaaaf hverju er ekki rugby á Íslandi?
Haha eg la undir trampolininu. Finnst thetta frekar toff mynd.
Á laugardeginum fórum við í svona lítið þorp eða garð eða eitthvað svoleiðis til að skoða jarðhitasvæði eda hitaveitusvaedi eða hvað sem það heitir. Sáum hveri, mud pools og svoleiðis, alveg eins og á Íslandi! Þetta var reyndar smá öðruvísi en lyktin var nákvæmlega eins. Tekkid bara myndirnar, get ekki lyst thessu mjog vel. Þegar við vorum þar kom svo rigningin sem við höfðum verið að bíða eftir svo við fórum bara heim. Á leiðinni sáum við örugglega nokkur hundruð máva og Chris stökk útúr bílnum til að hlaupa í gegnum hópinn og hræða þá í burtu. 






Facebook skemmdi sma gaedin a thessari. Thetta er semsagt Chris og mavarnir.
Ég og strákarnir fórum í sundlaugina í greeenjandi rigningu en flýttum okkur svo uppúr þegar það komu þrumur og eldingar. Við fórum bara inn og spiluðum í staðinn. Ég er orðin meistari í backgammon svo ef einhvern langar að spila backgammon og tapa þá getiði talað við mig og ég redda því fyrir ykkur. Dagurinn var semsagt frekar rólegur. Við spiluðum, horfðum á sjónvarpið og fórum í sund nokkrum sinnum yfir daginn haha.
Um kvöldið fórum við svo í svona wildlife park svo ég gæti séð kiwi fugla! Þeir eru nefnilega svo sjaldgæfir að það er varla hægt að sjá villta kiwi lengur. Ég sá allavega þrjá svoleiðis! Þeir voru ekki í búrum heldur í svona eins og litlum skógi í einhver skonar herbergi en það var samt frekar erfitt að sjá þá. Það var bannað að nota flash þegar maður tók myndir svo allar myndirnar mínar þar voru kolsvartar. Ég fann samt kiwi á einni þeirra þegar ég breytti brightness stillingunum haha.
Jajaja frekar leleg mynd haha
Við sáum svo fullt af öðrum dýrum þarna, mjög töff. Ég labbaði um með Chris og Mitch en hostforeldrar mínir fóru eitthvað annað bara. Ég get ekki lýst þessu mjög vel. Thad eru nokkrar myndir thadan adeins nedar i blogginu.
Þetta var skemmtilegt kvöld fannst mér. Eftirá fórum við svo í sundlaugina eins og vanalega minnir mig haha.
Á sunnudeginum fórum við fyrst í svona eins og almenningsgarð nema þar var enn meira hitaveitudót. Við löbbuðum þar í gegn og fórum svo aftur í sama wildlife park og kvöldið áður. Á daginn er nefnilega hægt að sjá fleiri dýr. Við gáfum asna að éta, hlógum að feitu svíni og reyndum að vekja pokarottu með priki. Við gerðum svo tilraun til að taka upp hæsnaunga en mamman réðst á okkur svo við hættum við. Eftir það keyrðum við bara heim!
Meira smelly dot

Fjolskyldan.. og eins og sest tha er komid haust herna hinum megin!
Chris ad rifast vid kea fugl. Thetta var kvoldid adur.
Tuatara
Utdaudur fugl, Moa
Faaaaranlega ljotur fiskur
Wallaby
Asni
Vekja possum
Þetta var æðisleg helgi fannst mér, mæli með því að þið farið til Rotorua ef þið farið einhvern tímann til Nýja Sjálands. Þetta er ekki uppáhaldsbærinn mín hér reyndar en samt.. I liked it.
Eeeeeeeen að allt öðru.
Ég er komin í algjört rugl með þessi blogg. Ég fresta þessu alltaf of mikið og enda á að hugsa langt aftur í tímann til að reyna að muna hvað ég hef verið að gera. Ég segist alltaf ætla að blogga styttra og oftar en geri það svo bara aldrei! Mjög svekkjandi þar sem að bloggin eru líka fyrir mig svo ég geti lesið um eiginlega allt árið mitt eftir að ég kem heim. Allt fyrir minningarnar bara.
Núna um helgina er semsagt End of Stay camp-ið mitt! Ég trúi því varla því að það er svo stutt síðan midstay camp-ið var! Allavega, eftir að ég kem heim þaðan þá kemur blogg um síðustu tvær vikur, smá um skólann, allskonar random dót og svo auðvitað AFS camp-ið. Ég ætla ekki að lofa neinu þar sem ég virðist aldrei standa við loforðin mín en ég ætla að reyna að koma með það blogg áður en næsta helgi kemur. Alriiiiight?
Segjum það og afsakið letina í mér.
Mér líður mjög illa yfir þessu. Án gríns.
Svo to sum it up. Fjölskyldan er góð, skólinn er góður, lífið er gott og Eyjafjallajökull gaus of snemma því ég vil ekki heim.
Sjáumst, kannski, í júlí.
-Þóra Margrét
P.s. Thad eru miklu fleiri myndir a facebook! Svo tekkid a thvi!
Sudureyjarferdin!
Hæ aftur!
Ófáir hafa kvartað undan því að ég hafi ekki enn bloggað um Suðureyjarferðina þar sem það eru núna meira en þrjár vikur síðan ég kom heim. Ég reyndi að hugsa upp einhverja afsökun en datt bara ekkert í hug svo ég hugsa að þetta sé allt mér og letinni í mér að kenna.
Reyndar þá vildi ég ekki blogga fyrr en ég væri búin að setja myndirnar á netið og ég reyndi margoft að uploada þeim á facebook en það kom alltaf „Upload failed". Skemmtileg saga, já!
En til að bæta þetta upp þá kemur hér langt, og þá meina ég LANGT blogg um bestu 10 daga lífs míns. Ég ætlaði að hafa þetta í tveimur hlutum en ég á bara 2 mánuði eftir hér svo að ef ég myndi skrifa eitt blogg núna og eitt eftir viku þá myndi bloggið um síðustu þrjár vikur koma eftir tvær vikur og væri þá blogg um fimm vikur og það væri fáránlegt.
Þeir sem að náðu þessu fá knús í júlí.
Svooo nóg af rugli! South Island Tour, gjöriði svo vel.
Þremur dögum áður en ferðin byrjaði flaug ég til Christchurch til að hitta Guðmundu. Þetta byrjaði ekki vel því að fluginu mínu var seinkað og í staðinn fyrir að fljúga klukkan 19.35 þá átti ég að fljúga klukkan 23.10 minnir mig. Stuttu seinna fékk ég svo annað sms frá flugfélaginu um að fluginu hefði verið frestað til 00.30. Þegar ég kom á flugvöllinn hafði vélin svo farið að vitlausu hliði svo við þurftum að bíða enn lengur. Á endanum þurftu allir að labba að nýju hliði og vélin fór ekki á loft fyrr en eftir klukkan eitt. Ég komst svo loksins til Guðmundu klukkan rúmlega 3 því ég þurfti að taka leigubíl og vesen. Flott það!
Við áttum frekar góða helgi bara í kuldanum í Christchurch haha. Fékk bæði íslenskt og nýsjálenskt páskaegg og við horfðum á myndir og svona kósí.
Þriðjudaginn 4. apríl byrjaði Suðureyjarferðin svo loksins. Við hittum hópinn á Christchurch Youth Hostel um kl 6 um kvöldið. Það kvöld fór bara í að kynnast fólkinu, læra reglurnar og svoleiðis. Allir fengu svo ‚buddy' til að fylgjast með svo að þegar við værum í rútunni gæti tour managerinn bara kallað ‚buddy check!' og þá leituðu allir að sínum buddy til að tékka hvort að allir væru mættir. Gott system sko. Minn buddy var Daniella frá Svíþjóð og Adrien frá Belgíu var minn ‚buddy checker.'
Við fengum svo lukkudýr ferðarinnar, kiwi bangsa og reyndum að finna á hann nafn. Ákváðum held ég daginn eftir að kalla hann Bruce.
Tour manager-inn okkar hét btw Hayley og hun var æði! Haha hun eyddi mestöllu kvöldinu í að læra nöfnin á krökkunum, frekar skrautlegt.
Það voru svo tveir aðrir fullorðnir með, ein kona sem hét Thera og kall sem hét Tony. Þau gátu verið mjög pirrandi stundum haha en við létum það ekki skemma fyrir okkur ferðina.
Dagur númer 2: Christchurch - Dunedin
Vöknuðum klukkan 7, átum, pökkuðum og uppí rútu! Keyrðum smá um Christchurch áður en við lögðum af stað til Dunedin. Morgunlagið okkar var svo spilað í fyrsta skipti. Það var eitthvað lag með Black Eyed Peas, man ekki hvaða, en við breyttum því svo í It's My Life með Bon Jovi. Við spiluðum það lag semsagt á hverjum morgni þegar við komum uppí rútu.
Á leiðinni til Dunedin lærðum við Maori lag sem við sungum svo aftur og aftur alla ferðina. Ekkert smá gaman haha. Fórum líka í leik milli raða í rútunni þar sem að Hayley bað t.d. um 5 t-shirts og þá áttum við að láta fimm stuttermaboli ganga alla leið to the back og svo aftur alla leið fremst og fyrsta liðið til að ná því myndi vinna. Hún bað einu sinni um brjóstahaldara haha frekar fyndð.
Við stoppuðum á nokkrum stöðum á leiðinni til að fara á klósettið og éta. Stoppuðum svo hjá Moeraki Boulders sem eru mjög spes kúlulaga steinar. Tókum myndir þar og borðuðum og keyrðum svo áfram til Dunedin.
Þeir sem vildu gátu farið í Cadbury súkkulaðiverksmiðjuna. Ég gerði það samt ekki og labbaði bara með nokkrum krökkum um bæinn. Það er nákvæmlega ekkert í Dunedin fyrir utan kirkju og háskóla. Svo var skítkalt þarna haha. Flestir háskólanemar eru ánægðir þarna held ég en mér fannst þessi bær ekkert spennandi. Haha þetta var samt ekkert alslæmt.
Við komum svo í lodge-inn okkar, borðuðum og fórum í einhverja leiki og spiluðum og svoleiðis. Ákváðum svo að lukkudýrið hann Bruce væri gay, gyðingur, asískur (gáfum honum eftirnafnið Li) og svo var hann svartur. Alls ekki rasist kiwi þar á ferð.
Við spjölluðum svo fram á kvöld og fórum svo bara að sofa eftir frekar góðan dag.

Eg og Moritz a einum af the boulders.
Daaaagur þrjú: Dunedin - Wanaka
Vöknuðum snemma, átum og lögðum af stað. Fyrsta stopp var Baldwin Street í Dunedin sem er brattasta gata í heimi. Löbbuðum þar upp og þetta var ekkert smá bratt! Útsýnið af toppnum var frekar flott.
Eftir það fórum við og sóttum eina stelpuna á spítalann því hun hafði orðið veik um nóttina, held hún hafi fengið matareitrun. Keyrðum svo til Wanaka. Á leiðinni stoppuðum við til að fara á klóið og svoleiðis, borðuðum hádegismat á Subway og horfðum svo á mynd á leiðinni og tókum smá quiz keppni.



Við komum svo loksins í Puzzling World rétt fyrir utan Wanaka. Það var ekkert smá töff! Það voru svona alls konar herbergi með sjónhverfingum og svoleiðis. Í einu herbergi voru t.d. andlit á veggjunum og þegar maður labbaði var eins og augun í þeim hreyfðust og þau fylgdust með manni. Svo var annað herbergi þar sem að maður virtist pínulítill ef maður stóð í einum enda herbergisins en risastór ef maður stóð í hinum endanum (erfitt að útskýra, kíkið bara á myndirnar). Ég og Guðmunda fórum svo þrisvar í eitt herbergi þar sem allt var öfugt. Það var mjöög ruglandi að labba þar inni! Maður stóð alveg venjulega en samt var maður á hlið. Þar var poolborð og ein kúlan virtist vera að renna upp í móti en var í rauninni að renna niður í móti og svoleiðis. Allt var rétt samt en herbergið var allt öfugt svo þetta var mjööög ruglandi!
Við fórum svo í völundarhús. Markmiðið var að finna fjóra turna (gulan, rauðan, grænan og bláan) og finna svo leiðina út. Ég og Guðmunda gáfumst upp eftir þrjá turna og Elja gafst upp á undan okkur og tók ‚emergency exit' út haha.

Gudmunda i skrytna herberginu



Spes
Við komum svo til Wanaka og byrjuðum á að læra The Haka útá túní. Það var æði sko, ekkert smá fallegt þarna og veðrið var gott. Loksins lærði ég svo the haka! Frekar stolt sko.
Um kvöldið var svo free night. Ég, Elja (Belgíu), Moritz (Þýskalandi), Andreas (Danmörku) og fleiri (útum allt) fórum að vatninu og svo á einhvern leikvöll þar sem mér tókst næstum að hálsbrjóta mig. Keyptum okkur kjúkling og rándýrar og ofsaltaðar franskar og borðuðum við vatnið. Það var ekkert smá töff og hefði verið enn betra ef mér hefði ekki sviðið í varirnar undan saltinu á frönskunum haha.
Seinna um kvöldið labbaði ég svo með fleira fólki um bæinn bara, sátum og spjölluðum, lögðumst svo niður og horfðum á stjörnurnar og svoleiðis. Æði sko! Elska stjörnurnar hér því maður sér svona inn í vetrarbrautina. Kvöldið fór svo í spjall, nudd og svoleiðis og svo fórum við að sofa eftir mjög góðan dag.

Wanaka


Dagur 4: Wanaka - Milford Sound
Vöknuðum hress og tilbúin til að fara til Milford Sound. Ég var ekkert smá spennt fyrir því þar sem að þetta er víst einn af fallegustu stöðum landsins og ég var viss um að þetta yrði frábært.
Keyrslan til Milford Sound var frekar löng en samt skemmtileg því að við þekktum alla mun betur og svoleiðis. Það var vanalega mjög gaman í rútunni. Á leiðinni æfðum við the haka og maori lagið og stoppuðum á einum stað til að fá real fruit ice cream. Við stoppuðum svo í Te Anau til að borða og við átum við Lake Te Anau. Loved it sko.
Landslagið milli Te Anau og Milford Sound var ólýsanlegt! Þegar fólk segir að Ísland sé fallegt veit það bara ekkert hvað það er að segja. Við stoppuðum á nokkrum stöðum til að taka myndir og á einum stað löbbuðum við í gegnum svona ‚bush'. Auðvitað var ég berfætt haha, ekki alveg það besta fyrir bush walk og Guðmunda tók mig á hestbak síðasta spölinn.

Lake Te Anau
Eg heilsadi uppa endurnar
Vid stoppudum tharna a leidinni. A myndinni eru eg og Moritz fra Thyskalandi.
Eg og Gudmunda vid Mirror lakes
Svo fallegt!
Keyrdum tharna!
Svo komum við loksins til Milford Sound! Fórum upp í bátinn og sigldum út. Ég var með Guðmundu, Penille (Danmörku) og Elju í herbergi. Vorum með frekar svalan, kringlóttan glugga í herberginu okkar haha. Svona ekta bátagluggi. Jáb, það þarf lítið til að gleðja skiptinema haha.
Eftir að hafa étið, heyrt allt um reglur og svoleiðis skelltum við okkur á kajak! Ég held þetta gerist ekki mikið betra verð ég að segja. Milford Sound er án efa fallegasti staður sem ég hef komið á. Ég kemst ekki yfir það hvað þetta var fallegt og að kajaka um þarna var frábært! Fjöllin þarna eru risastór, maður sér það ekki vel á myndunum samt.

Gudmunda, eg og Elja adur en vid forum um bord
Utum flotta gluggann okkar haha
Vid a kajak
Og eg. Eg stal thessum kajakmyndum fra Joy.
Eg og Gudmunda. Mjooog fallegt tharna!
Eftir það ég svo aftur upp í bátinn og nokkur af okkur hoppuðu af bátnum út í vatnið. Það var ekkert smá gaman! Er ekki alveg viss hvað þetta var hátt. Vatnið var ííískalt, um 12°C held ég. Ég hoppaði þrisvar og í þriðja skiptið sem ég hoppaði var ég orðin svo köld að ég fann varla fyrir neinu. Ég fór svo beint í heita sturtu eftir á.
Þegar ég var loksins komin í hlý föt og gat fundið fyrir andlitinu á mér aftur átum við og fórum svo út. Við sáum höfrunga frekar langt frá bátnum og okkur fannst það ekkert smá töff! Stuttu seinna komu þeir svo mun nær og það voru ca 4-5 höfrungar hoppandi við bátinn okkar frekar lengi. Það var svo æðislegt, hafði aldrei séð villta höfrunga áður.



Um kvöldið fengu svo allir köku því að Maibrit frá Danmörku átti afmæli. Dönsku krakkarnir sungu svo danska afmælissönginn fyrir hana haha. Ég, Guðmunda, Penille, Joy (USA) og fleiri héngum bara úti um kvöldið á meðan flestir voru inni að spila. Sáum svona lýsandi fiska og svoleiðis. Sátum svo bara úti í myrkrinu og spjölluðum. Það var alveg dimmt og við sáum bara útlínurnar af fjöllunum og stjörnurnar og heyrðum svona smá í vatninu.Bara best. Fórum svo að sofa um kl 10 eftir magnaðan dag!

Dagur 5: Milford Sound - Queenstown
Ég, Guðmunda og Penille vöknuðum klukkan 6 til að sjá sólarupprásina. Við komumst svo að því að fjöllin í kring voru of há til að hún sæist. Smá fail! Við töluðum aðeins við einn kokkinn og ég held okkur hafi tekist nokkuð vel að sannfæra hann um að við værum stórskrýtnar.
Þegar allir vöknuðu loksins fórum við út og vorum þar það sem eftir var af siglingunni. Það var mjög hvasst og ískalt en þetta var svo þess virði! Eins og ég sagði áður þá er Milford Sound örugglega það fallegasta sem ég hef séð. Við sigldum svo upp að risastórum fossi sem var frekar töff. Fórum liggur við undir hann haha. Sáum svo höfrunga aftur, frekar langt frá bátnum samt.


Eg og Adrien
Gudmunda, eg og Joy
Við komum svo í land og keyrðum meira. Við stoppuðum aftur í Te Anau til að éta og svo nokkur klósettstopp. Þegar við komum svo loksins til Queenstown var mér orðið mjög óglatt. Við fórum í ‚Secrets of bungy tour' og horfðum á video um teygjustökk og söguna á bakvið það og svoleiðis. Nokkrir fóru í 43 metra teygjustökk af Kawarau bridge. Bruce the kiwi fór svo í teygjustökk með Moritz frá Germany.

Moritz ad hoppa med Bruce
Komum svo inn í bæinn og fórum í gondola. Hafði farið í það áður þegar ég fór til Queenstown með Guðmundu. Þetta er semsagt svipað og lokuð skíðalyfta haha mjög töff og geðveikt útsýni. Fengum svo luge rides. Það eru svona eins og litlir, flatir bílar og maður brunar á þeim eftir braut. Það var mjög gaman fannst mér! Eftir það var mér meira að segja farið að líða betur. Ég var reyndar síðust til að klára luge dótið og fann engan í hópnum. Ég hélt að allir væru farnir niður svo ég tók bara the gondola aftur niður og fór upp í rútu en fann engan! Komst svo að því að allir væru ennþá uppi að horfa á fólk gera teygjustökk. Ég gat samt ekki farið aftur upp án þess að borga þannig ég beið inní rútu í like 40 mínútur haha. 
Luge
Ég byrjaði svo að versna aftur og þegar við komum á mótelið var mér ískalt og ég var of máttlaus til að geta dregið töskuna mína. Ég byrjaði bara að skjálfa sjálfkrafa. Fór samt niður í bæ með krökkunum um kvöldið því við áttum free night. Ég rölti þarna um Queenstown í tveimur peysum, lopapeysu, jakka og vettlingum haha! Allir fengu sér stærstu hamborgara sem ég hef séð en þeir eru víst bestu borgarar á Nýja Sjálandi. Ég fékk mér samt ekkert.
Við ákváðum svo að vera sniðug og gerðum the haka við Lake Wakatipu (vatnið við Queenstown). Mér fannst það ekkert smá töff! Sungum líka Maori lagið þar, oftar en einu sinni haha.
Ég fór svo bara fyrr upp í herbergi, fór í heita sturtu og sofnaði svo bara í öllum fötunum með tvær sængur og svefnpoka. Vildi nefnilega vera góð fyrir næsta dag sem ég vissi að yrði með skemmtilegustu dögum ferðarinnar.
Afsakið smáatriðin. Finn engar myndir fra thessum hluta, sorry med thad lika.
Dagur 6: Queenstown - optional activities
Ég vaknaði hress og að stikna úr hita um klukkan 7. Ég, Penille, Joy og fleiri löbbuðum niður í miðbæ Queenstown og tékkuðum okkur inn fyrir FALLHLÍFASTÖKK! Horfðum á eitthvað video og fylltum út blöð og svo keyrðum við spennt að stökkstaðnum. Fengum galla og svoleiðis. Gaurinn sem hoppaði með mér kom svo og kynnti sig. Hann var mjög hávaxinn og með riiisastórar hendur! Hann hefði alveg eins getað sleppt því að taka í höndina á mér því hún hvarf bara þegar hann tók utan um hana. Hann hét btw Sasa og hafði farið í fleiri en 190þúsund stökk!
A leidinni
Allavega þá fórum við næst yfir nokkur atriði og okkur var sagt að þegar við hoppuðum úr flugvélinni ættum við að halla hausnum aftur á bak og láta líkamann vera í laginu eins og banani. Flott það.
Svo fórum við bara upp í flugvél! Við vorum þrjú saman í flugvél og svo gaurarnir sem hoppuðu með okkur. Flestir sem hoppuðu fóru annað hvort upp í 9þús feta hæð eða 12þús. Ég, Penille og Ronan (Frakklandi) fórum hins vegar alla leið upp í 15þúsund fet. Auðvitað þurfti ég að taka hæsta mögulega stökkið haha. Ronan var fyrstur til að hoppa og svo var komið að mér. Sasa setti á mig hattinn og gleraugun, fullvissaði sig um að ég væri örugglega föst við hann og hoppaði svo út! Þetta var æðisleg tilfinning! Tókum smá kollhnís og byrjuðum svo að hrapa. Mér fannst samt ekkert eins og ég væri að hrapa. Þetta var bara eins og að vera fljótandi.. í miiiklu roki! Það var samt frekar töff að sjá flugvélina falla í burtu frá okkur þegar við hoppuðum út. Það var í eina skipti sem ég fann fyrir því að ég væri að hrapa úr 15þúsund feta hæð!
Eftir tæpa mínútu af frjálsu falli opnaði gaurinn svo fallhlífina og við svifum þarna um í nokkrar mínútur. Þetta var svoo æðislegt sko! Ótrúlega flott útsýni. Sá alveg yfir Queenstown og vatnið og fjöllin í kring og bara vááá. Fórum svo í nokkra hringi og ég lenti svo með glæsibrag á rassinum.
Þetta var frábært og svo þess virði! Þetta var ekki einu sinni neitt hræðilegt. Mér fannst þetta vera svipað og útsýnisflug nema ég var bara ekki inní flugvélinni og ég gat ekki andað í gegnum munninn.
Þannig að gott fólk, ég hef núna hoppað úr flugvél með mann á bakinu.
A engar myndir i tolvunni, bara utprentadar.
Þetta var samt ekki það eina. Ég fékk ekki alveg nógu mikið adrenalín út úr fallhlífastökkinu svo að eftir stuttan blund uppí herbergi löbbuðum við Penille (Danmörku) aftur niður í bæ og tékkuðum okkur inn fyrir teygjustökk! Og ekki bara eitthvað teygjustökk heldur hæsta teygjustökk Nýja Sjálands; the Nevis. 134 metra hátt, takk fyrir. Við bókuðum þetta allt fyrsta daginn btw.
Ég hafði verið mjög kvíðin fyrir því daginn áður en þegar við lögðum af stað að stökkstaðnum var ég nákvæmlega ekkert stressuð, bara spennt. Pallurinn sem við hoppuðum af var yfir miðju gili og vírar héldu honum uppi. Til að komast þangað þurftum við að fara í svona vagni eftir vírunum. Þar sem ég var léttust í hópnum var ég síðust til að hoppa! Ég fylgdist þess vegna fyrst með nokkrum hoppa og svo var komið að mér.
Þetta stökk var án efa betra en 47 metra stökkið sem ég fór í í Taupo! Tilfinningin þegar ég hoppaði var rosaleg. Ég sá ána lengst niðri koma nær og nær og mér leið svolítið eins og ég væri að fljúga. Þetta var frábært! Ég elska að vera í frjálsu falli haha. Ef þetta teygjustökk er ekki það besta sem ég hef gert þá veit ég ekki hvað.
Svona komst madur yfir
Fyrir stokkid
Rett eftir ad eg hoppadi
Jebb,jebb!
Um kvöldið var svo hangi. Það er Maori matur sem er eldaður ofan í jörðinni. Fólk hafði komið eldsnemma um morguninn til að grafa holur og setja matinn ofan í svo við gætum borðað um kvöldið. Hinn South Island Tour hópurinn var kominn til Queenstown og borðuðum með okkur. Við gerðum haka fyrir þau og sungum lagið eins og alltaf. Við héldum að það yrði smá keppni milli hópa en þá höfðu þau lært hvorugt! Við unnum þá keppni semsagt með léttu haha.
Við fengum svo hangi sem var ótrúlega gott og tókum svo slatta af myndum og svoleiðis. Fyrr um daginn höfðum við pantað hettupeysur fyrir hópinn og við fengum þær þarna um kvöldið. Fundum svo gat á greyið Bruce haha og redduðum því með teipi og plástrum.
Fór svo bara að sofa eftir geeeeðveikan dag!
Folk
Hangi
Eg og Gon fra Argentinu i nyju peysunum okkar. Thad stendur svo 'South Island 2010' aftana
Dagur 7: Queenstown - Franz Josef
Ég veit að þetta blogg er orðið mjög langt og það eru enn 4 dagar eftir. Takið bara pásu ef þið þurfið því ég ætla ekki að hætta.
Við vöknuðum snemma og byrjuðum á að fara í jet boating! Ég hafði gert það áður þegar ég fór síðast til Queenstown en þetta var svo miklu skemmtilegra! Tók lengri tíma og við fórum í krappari beygjur og svoleiðis. Ég var rennandi blaut eftirá haha.

Folkid i minum bat, eg er aftast.
Svo keyrðum við lengi, lengi því að Franz Josef er langt frá Queenstown. Horfðum á myndir og e-ð á leiðinni og það var bara frekar gaman í rútunni eins og alltaf. Moritz frá Þýskalandi gaf okkur svo Haribo bangsa! Svooo gott haha.
Ég og fleiri höfðum bókað þyrluflug yfir jökulinn við Franz Josef en þegar við komum þangað var svo mikil þoka að það sást nákvæmlega ekkert. Við gátum ekki farið í flugin en fengum að vita að við gætum mögulega farið snemma morguninn eftir.
Flestir hjálpuðu svo til við að elda kvöldmatinn en við hin sem komumst ekki fyrir í eldhúsinu fórum og horfðum á Pokémon haha.
Um kvöldið fórum við svo í hot pools sem var frekar töff bara! Vatn beint úr jöklinum.
Svo fórum við bara til baka og uppí rúm að sofa.
Dagur 8: Franz Josef - Motueka
Fengum að vita um morguninn að það væri ekki hægt að fara í þyrluflug. Frekar svekkjandi en það var ekkert sem við gátum gert í því. Við keyrðum að skriðjökli þarna rétt hjá. Auðvitað var rigning haha og myndavélin mín dó svo ég stal thessari mynd fra Gudmundu.
Fórum svo í greenstone factory. Greenstone er semsagt steinn sem finnst í Nýja Sjálandi og í þessari verksmiðju var verið að búa til svona Maori tákn og svoleiðis úr steininum til að gera hálsmen. Það eru mjög margir sem eiga svona hálsmen (ekki bara ú greenstone heldur líka hvalabeinum og fleiru) og það er hægt að fá mörg mismundandi tákn eða svoleiðis. Mig langaði ekkert smá að kaupa en þetta var bara svo dýrt! Kaupi kannski seinna. Það var allavega gaman að sjá hvernig þetta er buið til. A engar myndir fra thvi, sorry.
Við keyrðum svo að Punakaiki, eða Pancake Rocks. Það eru steinar sem eru í alvöru eins og pönnukökur! Það var rok og rigning en við löbbuðum samt þarna meðfram og skoðuðum. Mjög flott bara.
Pancake Rocks
Við komum svo loksins til Motueka. Spjölluðum bara og svoleiðis. Það var annar NZET hópur á staðnum. Ekki AFS krakkar samt heldur international students. Töluðum aðeins við þau og svoleiðis og svo var bara chill mestallan daginn held ég.
Um kvöldið var svo smá keppni milli hópa. Þetta var ekki keppni reyndar en við ætluðum samt að vinna haha. Gerðum haka og sungum lagið eins og alltaf. Þau voru með annað lag en ég held að við höfum verið muuun betri.
Haha ég held það hafi verið þetta kvöld sem að Adrien frá Belgíu opnaði frystinn, reyndi að troða mér inn í hann og sagði mér að fara aftur til heimalands míns. Fallegt af honum, já!
Seinna um kvöldið var svo drag show! Það voru ca 3 stelpur saman í hóp og hver hópur fekk einn strák til að dressa upp sem stelpu. Við fengum Kristian frá Danmörku. Við klæddum hann í bleikar stuttbuxur og g-streng og allt og hann mótmælti ekkert haha. Máluðum hann svo og teiknuðum á hann augabrúnir!
Sýningin var svo ótrúlega fyndin. Sumir strákarnir voru alveg eins og stelpur haha. Þeir þurftu líka að svara spurningum þegar þeir komu að dómurunum og margir komu með mjög fyndin svör.
Eftir að hafa hlegið mikið og fengið kvartanir undan hávaða, fórum við að sofa.
Haha saet
Dagur 9: Motueka
Morguninn var frekar rólegur svo við höfðum nægan tíma til að vakna og gera okkur til og svona. Tókum hópmynd sem við fengum svo útprentaða síðasta daginn. Eftir það gerðum við okkur til fyrir kajak & gönguferð.
Komum á kajakstaðinn í Abel Tasman National Park og okkur var skipt í hópa. Einn hópurinn byrjaði á að labba (hiking) og átti svo að kajaka til baka og einn hópurinn kajakaði fyrst og labbaði til baka. Ég var í hópnum sem kajakaði fyrst.
Við vorum í veggja manna kajökum og Heleen frá Hollandi var með mér í kajak. Þetta var æææði. Það var svo fallegt þarna og vatnið var alveg kyrrt. Þetta var frekar auðvelt og við kajökuðum bara og horfðum á landslagið og svona. Frábært . Stoppuðum svo á leiðinni og stilltum kajökunum upp í línu og svo stóðu allir upp. Á enga mynd af því, því miður.


Bruce kom med!
Við komum svo að ströndinni og hittum þar inn hópinn. Borðuðum hádegismat og lékum okkur svo á ströndinni í svona klukkutíma. Ég læt bara myndirnar tala.

Gudmunda, Pierre fra Frakklandi og eg i bungy bolunum okkar
Ad spila touch rugby.
Gudmunda ad flyja undan byflugum haha
Beeest
Svo fórum við til baka og minn hópur átti að labba. Það voru hins vegar of fáir í hinum hópnum svo þau þurftu tvo í viðbót til að kajaka til baka með þeim. Ég og Penille frá Danmörku gripum það tækifæri haha. Þar sem við höfðum gert allt áður þá vorum við bara að hjálpa hinum og svoleiðis fyrst.
Leiðin til baka var miklu erfiðari. Það var kominn frekar mikill vindur og við þurftum að kajaka á móti öldunum. Það var samt ótrúlega gaman! Við Peni vorum líka ákveðnar í að vera fyrstar til baka þó að við værum þreyttar haha! Þetta var frekar góð líkamsrækt. Vorum alltaf bara rétt fyrir aftan leiðsögumanninn, Scotty, sem var btw alls ekki ljótur! Við brunuðum svo í land, ákveðnar í að vera fyrstar. Við náðum óvart öldu þegar við vorum alveg að verða komnar í land og fórum þess vegna frekar hratt. Við náðum ekki að halda bátnum beinum svo hann snerist á hlið og hvolfdist svo! Of fyndið haha. Við komum allvega fyrstar til baka, rennandiblautar og hlæjandi.
Við Penille hjálpuðum svo til við að ganga frá kajökunum, þrífa gallana og svoleiðis. Þegar við hittum svo restina af hópnum fengum við special thanks frá Scotty fyrir alla hjálpina. Okkur fannst það alls ekki leiðinlegt! Adrien frá Belgíu heyrði okkur tala um hann og sagðist ætla að fara og fá númerið hans fyrir okkur. Við héldum að hann væri að grínast en neeeib, hann kom til baka með númerið hans Scottys á miða. Það er langt síðan ég hef hlegið jafnmikið sko. Eftir það var lagið ‚Scotty doesn´t know' úr Eurotrip spilað slatta í rútunni fyrir okkur. Þetta var allt bara smá grín samt en mjög fyndið.
Ég held að þessi kayakferð hafi verið með því besta sem við gerðum í ferðinni! Það er svo fallegt þarna og ég eeelska að kajaka. 
Scotty ad utskyra fyrir hinum hopnum adur en vid forum af stad aftur.
Um kvöldið kom svo hinn AFS hópurinn, sami hópur og við hittum í Queenstown. Við spjölluðum aðeins við þau og eitthvað og horfðum svo á mynd í bíósalnum þarna á staðnum. Fórum svo að sofa eftir góóðan dag.
Dagur 10: Motueka - Kaikoura
Vöknuðum og keyrðum til Kaikoura. Við stoppuðum á leiðinni og sáum fullt af selum haha. Þeir voru frekar sætir en spikfeitir! 
Við komum svo til Kaikoura. Það er pínulítill bær og og það er nákvæmlega ekkert þar! Samt fullkominn bær fyrir þá sem vilja fara í hvalaskoðun eða synda með höfrungum. Við fengum tækifæri til að gera það en ég gerði hvorugt. Fannst ég hafa eytt nógum pening haha.
Við fengum frjálsan tíma sem ég og krakkarnir sem ég hékk mest með eyddum í að reyna að finna buddy gifts handa buddy-unum okkar. Á síðasta kvöldinu áttum við nefnilega að gefa okkar buddy gjöf fyrir $5.
Við bjuggum svo til gjafir fyrir Hayley. Frá öllum hópnum gáfum við henni bók með öllum heimilisföngum, netföngum, símanumerum og svoleiðis svo hún gæti komið og heimsótt okkur. Ég, Guðmunda, Elja, Penille og Joy gáfum henni svo kórónu. Við kölluðum hana nefnilega stundum ‚The Queen'. Á meðan við vorum að þessu byrjuðum við Guðmunda smá svona að rökræða eitthvað og Adrien hvíslaði þá „You think they´re gona start a snowball fight?" því við erum báðar frá Íslandi haha.
Gudmunda thegar vid vorum ad era koronuna haha
Við átum svo kvöldmat, kláruðum að búa til gjafnirnar og fórum svo á lokakvöldið okkar. Síðasta kvöldið í Suðureyjarferðinni : (
Við byrjuðum á að gefa buddy gjafirnar og allir fengu líka viðurkenningar frá sínum buddy ‚checker'. Ég fékk viðurkenningu fyrir að vera alltaf brosandi, hanga mikið við hliðina á frystinum og fyrir að skora á Guðmundu í snjóstríði.
Svooo var komið að verðlaunaafhendingu. Það voru gefin alskonar verðlaun. Guðmunda fékk til dæmis verðlaun fyrir að pakka sjálfri sér. Í Queenstown datt klaufinn nefnilega ofan í ferðatöskuna sína og meiddi sig í hendinni! Við gerðum endalaust grín að henni út af því.
Það voru fullt af öðrum verðlaunum líka.
Í ferðinni höfðum við verið með litla bók sem allir skrifuðu í. Kathi frá Austurríki fékk þá bók. Svo vorum við með fótbolta, rugby bolta og all blacks fána sem voru líka gefin til þeirra sem áttu það skilið. Ég fékk svo að eiga lukkudýrið Bruce! Ég var ekkert smá ánægð! Ég veit ekki alveg fyrir hvað ég fékk hann því að Hayley var grátandi þegar hún gaf mér hann haha.
Restin af kvöldinu fór svo í að skrifa á hópmyndirnar okkar, knúsast og grenja mikið, mikið. Við vorum öll orðnir svo góðir vinir að það var erfitt að kveðja. Ég held líka að enginn hafi viljað að þessi ferð myndi enda.
Ad gefa buddy gift
Thad var gratid. hahahaha sorry Gudmunda, eg vard! Thu matt drepa mig seinna.
Við horfðum svo á myndir, fengum nammi og svoleiðis og fórum svo seint að sofa.
Dagur 11: Kaikoura - Christchurch - Heim
Við vöknuðum í rigningu, átum, pökkuðum og upp í rútu. Það var þá sem við Guðmunda heyrðum að eldgos væri hafið í Eyjafjallajökli! Við vissum ekkert hvað væri að gerast samt eða hversu alvarlegt það væri því það var bara talað um flugvélar og aflýst flug í útvarpinu. 
I rutunni. Hlustudum endalaust a Yes (everyday i see my dream) haha.
Keyrslan til Christchurch var ekki mjög löng. Það var samt geðveik stemning í rútnni. Allir voru syngjandi og dansandi og öllum var alveg sama þó við löbbuðum um rútuna og svoleiðis. Ekkert smá gaman.
Við spiluðum morgunlagið okkar (It's My Life) í síðasta skipti rétt áður en við komum á flugvöllinn. 
Haha jab, thad var dansad
Á flugvellinum fengum við okkur bara að borða og svo var komið að því að kveðja. Aftur var mikið grátið haha. Ég þurfti svo að kveðja Penille sem var svoo erfitt! Við vorum orðnar svo góðar vinkonur og ég veit ekkert hvenær ég sé hana aftur.
Ég og nokkrir aðrir sem voru að fara til Auckland vorum síðust til að fara. Við fengum að vita að fluginu okkar væri seinkað, frábært! Ég fór og kíkti á netið til að reyna að finna meira um eldgosið. Komst að því að þetta var ekkert of alvarlegt þó að flestar fréttirnar væru bara um vesen með flug.
Við töluðum svo við einhverjar nýsjálenskar stelpur þarna á flugvellinum. Ein spurði Andreas frá Danmörku hvort að Danmörk væri fylki í Bandaríkjunum! Það var bara ein af mörgum asnalegum spurningum sem við fengum haha.
Við komumst svo að því að það var bara ekkert seinkun, fórum upp í vél og flugum heim til Auckland. Við kvöddum fólkið og svo kom nýja hostmamma mín og sótti mig og Elju.
THE END
Þessi ferð var án efa besta ferð sem ég hef farið í! Ég sakna allra krakkanna ennþá og ég myndi pottþétt gera þetta allt aftur ef ég fengi tækifæri til þess. Ég get ekki lýst því í orðum hvað þetta var gaman.
Takk mamma og pabbi!!
Næsta blogg kemur svo eftir ca viku.
Þangað til þá
-Þóra Margrét
Mer dettur engin fyrirsogn i hug
Þar sem ég mun halda til Suðureyjarinnar núna í kvöld þá fannst mér við hæfi að smella inn einu bloggi áður en ég sting af. Þið munið nefnilega fá löng blogg þegar ég kem til baka (blogg er í fleirtölu þar sem ég býst við að þurfa að hafa þetta í hlutum) því ég er að fara í 10 daga ferð um Suðureyjuna. Ferðin byrjar reyndar ekki fyrr en á þriðjudaginn en ég fer til Guðmundu fyrst í ca 3 daga. Ekki slæmt að eyða páskunum í Christchurch! Meira að segja nafnið á borginni gæti ekki verið meira viðeigandi (tho ad nafnid segi ekkert um sukkuladi..)
Seeeeeemsagt, síðustu tvær vikur hafa verið ansi skrautlegar. Eins og þið vitið þá skipti ég um fósturfjölskyldu. Eins og ég var búin að segja þá flutti ég á þriðjudeginum fyrir rúmum tveimur vikum siðan. Ég náði svo í dótið mitt á föstudeginum. Það tók mig um þrjá klukkutíma að pakka dótinu mínu! Mun þurfa að henda slatta þegar ég unpacka hjá nýju fjölskyldunni því annars verður of erfitt að pakka þegar ég fer heim.
Helgin þar á eftir var svo bara allt í lagi. Fór á Polyfest sem er Maori & Pacific Islands festival. Mjög töff sko, vorum þar bara að kynna afs og horfa á alls konar atriði. Eeelska maori menningu sko og svo voru mörg flott atriði frá t.d. samoa. Mjög töff. Gerði svo e-ð meira afs tengt þá helgina sem ég nenni ekkert að segja frá því enginn mun nenna að lesa það. Sounds good? Flotter.
Skólavikan eftir þá helgi var bara mjög góð verð ég að segja. Mér finnst skólinn hér vera orðinn mun skemmtilegri og ég er sátt við flesta tímana mína. Þó að geography geti verið mjög svo leiðinlegt þá græddi ég nú samt á að hafa valið það fag! Við fórum nefnilega í tvær ferðir í vikunni svo ég hafði bara 3 venjulega skóladaga.
Fyrsta ferðin var til Muriwai beach. Við erum nefnilega að læra um ströndina, sandhóla og eitthvað svoleiðis í landafræði og við fórum til Muriwai til að gera verkefni um sand dunes. Það var fint bara, skoðuðum ströndina , tókum nokkrar myndir og skrifuðum glósur. Minn hópur kláraði allt fyrir hádegi svo við sátum bara og spjölluðum. Rétt áður en við fórum heim týndist einn strákurinn. Öllum var bara alveg sama haha, frekar fyndið. Eftir ca hálftíma voru flestir orðnir frekar þreyttir á að bíða og vildu bara fara heim, og þá fannst hann loksins. Ég veit ekki alveg hvernig það er hægt að villast á strönd en það er greinilega hægt..
Daginn eftir fórum við svo til Omaha beach sem er á austurströndinni. Fórum þangað til að sjá muninn á ströndunum. Omaha er aaallt öðruvísi, ekki eins miklar öldur og sanddunes og svoleiðis. Ætla nú ekkert að lýsa því öllu fyrir ykkur þar sem þetta blogg á að vera skemmtilegt en ekki endurtekning á skólaverkefnum úr frekar leiðinlegu fagi. Haha þessar ferðir voru samt frekar skemmtilegar bara eins og flest skólaferðalög! Miklu skemmtilegra að eyða tíma með vinum á ströndinni heldur en að hanga í skólanum.
Held ég sé pottþétt að gleyma að segja frá einhverju úr þessum ferðum en það verður bara að hafa það. Og ég var ekki með myndavél eins og þið sjáið svo þetta blogg verður svarhvítt eins og síðasta blogg. Jei.
Á laugardeginum fór ég svo að versla með Michelle. Daginn eftir keyrði Nicola, trúnaðarkonan mín (ég bý með henni núna) mig til Helensville þar sem fyrsta hostfjölskyldan mín býr. Mamma sendi mér nefnilega nokkur páskaegg og þar af voru fjögur fyrir gömlu hostsystkini mín. Það var bara fínt að hitta þau aftur og krakkarnir voru ekkert smá ánægðir með eggin! Hitti líka góðan vinn minn þar sem ég hef ekki hitt síðan í lok júlí sem var mjög gaman.
Ég held þetta sé pretty much allt sem ég gerði þessa helgi. Þó þetta virki leiðinlegt þá var þetta mjög góð helgi bara haha.
Helgin var svo ekkert búin því að á mánudeginum var önnur skólaferð! Í þetta skipti með sögubekknum mínum. Við fórum til Waikato sem er svæði fyrir sunnan Auckland. Vorum að skoða battle fields (íslensk þýðing óskast) frá stríðunum milli maori fólks og pakeha. Skoðuðum svo kirkju þar sem eitt af stríðunum átti sér stað og maður gat séð holur í veggjunum eftir byssukúlur! Mér fannst frekar skrýtið að labba á nokkrum fields þar sem að fólk hafði bæði barist og dáið! Enn skrýtnara að þetta hafi verið hér á Nýja Sjálandi þar sem þetta land er ekki beint þekkt fyrir stríð haha. Ég nenni ekki að útskýra hvað þessi stríð gengu útá samt, fyrir áhugasama þá veit google það örugglega. Ég get líka útskýrt það fyrir ykkur seinna en ég bara nenni því ekki í þessu bloggi. Afsakið letina í mér. Þetta var annars bara frekar skemmtileg ferð.
Á þriðjudag og miðvikudag voru svo bara venjulegir skóladagar. Á fimmtudag var svo síðasti dagurinn af þessari önn en ég ákvað að vera töff og mæta ekki í skólann. Hostbróðir minn hjá gömlu fjölskyldunni minni var nefnilega að fara að gifta sig og mér var boðið í brúðkaupið.
Þetta var mjög flott brúðkaup, frekar afslappad. Frekar öðruvísi en brúðkaup eru venjulega held ég. Það var haldið utandyra í svona görðum svo að allt í kring voru blóm og tré og svoleiðis. Gestirnir sátu heldur ekki heldur stóðu allir bara í kringum brúðhjónin meðan það var verið að gifta þau. Frekar töff bara! Eftirá var svo mjög góður matur og það var boðið uppá lestarferðir um garðana haha. Svipuð lest og kókópöffs lestin í húsdýra- og fjölskyldugarðinum.
Í gær var svo föstudagurinn langi og ég gerði bara ekkert spes. Eyddi mestum deginum bara í að pakka fyrir Suðureyjuna. Letin var samt í hámarki og ég frestaði öllu eins mikið og ég gat auðvitað. Dagurinn í dag var svo alveg eins þar sem ég kláraði ekki að pakka í gær. Ég fékk svo sms frá flugvélaginu um að fluginu mínu hefði verið frestað! Þannig að í staðinn fyrir að fara kl 7.35pm þá atti eg ekki ad fara fyrr en 11.115 pm! Fekk svo annad sms um ad fluginu hefdi verid frestad AFTUR til 12.30am. Smááá pirruð en ég get ekki gert neitt í þessu haha.
Ég er annars komin með nýja fjölskyldu! Það hljóta að teljast góðar fréttir hah. Í síðustu viku voru tvær fjölskyldur búnar að segja já við að hosta mig og svo ég gat valið á milli! Þær búa samt báðar frekar langt frá skólanum svo það myndi taka mig langan tíma að komast í skólann og til baka. Í dag fékk ég svo að vita að það væri fundin fjölskylda í mínu hverfi. Ég er svoo ánægð því hún er bæði nálægt skólanum og vinum mínum. Ég flyt þangað þegar ég kem heim frá Suðureyjunni. Eg hitti thau i dag og thau eru aedi fannst mer.
Trúnaðarkonan mín býr nefnilega í ca 40 mínútna fjarlægð frá skólanum svo það hefur tekið mig laaangan tíma að komast í skólann á hverjum degi. Kom samt bara tvisvar seint. Einu sinni um 10 mínútum of seint því umferðin var svo mikil og svo í seinna skiptið kom ég bara einni mínútu of seint. Hér er það nefnilega þannig að ef maður kemur inn á skólalóðina eftir að bjallan hringir þá þarf maður að fara og fá Late Pass og mæta svo í detention í fyrstu frímínútum. Ég fékk semsagt LatePass fyrir að mæta klukkan 8.41. Mér fannst það ótrúlega fyndið. Fór bara og utskýrði að ég ætti heima lengst í burtu og slapp við detention. Yay.
Skemmtileg saga, já!
Eldgosið heima kom í fréttunum hér og á fréttasíðunni. Fréttafólkið var eitthvað að gera grín að nafninu á Eyjafjallajökli. Veðurfréttakonan reyndi svo að bera það fram og ég held hún hafi ekki náð einum staf rétt. Flott það! Í gær kom svo í fréttunum að eldgosið væri orðið að helsta túristaáfangastað Íslands. Týpískt að ég sé hinum megin á hnettinum þegar það kemur loksins eldgos á Íslandi! Haha mig dauðlangar að sjá það en ég er nú samt ánægð þar sem ég er.
Það er samt frekar fyndið hvernig ég heyrði af gosinu. Vinur minn sagði mér frá því í sögutíma og ég hélt hann væri bara að grínast. Fólk hélt svo áfram að spyrja mig um gosið yfir daginn. Ég kíkti svo á mbl.is í frímínútunum og sá að það var alveg satt. Þannig að Nýsjálendingarnir vissu af því á undan Íslendingnum. Great.
Annars elska ég lífið hér bara. Árið hefur verið frekar erfitt stundum en núna er bara allt gott. Skólinn er orðinn frekar skemmtilegur finnst mér og ég á núna mjög góða vini sem verður erfitt að kveðja! Mig langar bara eiginlega ekkert heim svo að ekki láta ykkur bregða ef ég missi „óvart" af fluginu mínu. Ég á alltof stuttan tíma eftir hérna! Núna er ég komin í veggja vikna frí sem ég mun eyða á Suðureyjunni. Eftir það á ég bara tvo og hálfan mánuð eftir! Það eru bara nokkar vikur af skóla sem eiga eftir að líða mjög hratt. Ég trúi þessu ekki! Hvert fór árið mitt?
Ég held ég láti þetta duga í bili. Mér tókst held ég að koma tveimur vikum í frekar stutta frásögn!
Ég var alls ekki ánægð með hvað ég fékk fá comment á síðasta blogg. Ég veit ekki hvað ég þarf að segja ykkur þetta oft en comment pleeeease ok?
Ég er að hugsa um að bæta upp myndaleysið með því að skella inn myndabloggi einhvern tímann þegar ég nenni og hef tíma. Ég fæ örugglega myndir úr brúðkaupinu bráðum og ég get örugglega fundið myndir af einhverju öðru sem ég hef verið að gera undanfarna mánuði. Ég sé til hvernig það fer.
Næsta blogg kemur þegar ég kem heim frá Suðureyjunni og þaaaar verða sko teknar myndir!
Comment comment comment comment comment
eða bara skrifið nafnið ykkar, það er nóg.
-Þóra Margrét
P.s. Muniði þegar ég sagðist hafa meitt mig í tánni í fyrstu skólavikunni?
Er eðlilegt að hun sé enn bólgin?
2 vikum seinna...
Góðan daginn.
Ég lofaði seinni hluta eftir viku svo þið fáið seinni hluta eftir tvær vikur. Þið eruð örugglega að velta þvi fyrir ykkur hvaða afsökun ég kem með í þetta skiptið, hvort það sé leti, skóli eða netleysi sem varð til þess að ég kem með þetta blogg viku of seint. Ég held að afsökunin sem ég hef núna sé sú besta hingað til.
Ég skipti um fósturfjölskyldu.
Jáb, ég flutti frá fjölskyldunni minni núna síðasta þriðjudag. Ástæðan fyrir því er mjög flókin og þetta gerðist allt mjög hratt. Það var allavega að hluta til af því að fósturpabbi minn var með heilaæxli sem gerði fjölskyldulífið erfitt. Þó að ég hafi átt mjög gott ár hérna þá hafa komið nokkur erfið tímabil þar sem mér hefur liðið frekar illa. AFS vildi allavega flytja mig útaf heimilinu og ég veit ekki alla söguna á bakvið það. Ég bý núna hjá trúnaðarkonunni minni þangað til ný fjölskylda finnst og mér líður bara vel. Ég fór reyndar ekki til að pakka dótinu mínu niður fyrr en á föstudaginn svo að í þrjá daga var ég bara með kósíbuxur, hlýrabol, hettupeysu, stuttbuxur og skólabúninginn minn haha!
Ég er enn í sama skólanum og ég og fjölskyldan mín erum enn vinir svo það er allt í góðu lagi. Núna bíð ég bara eftir fréttum um nýja fjölskyldu. Ég á bara 3 mánuði eftir svo hver dagur er mikilvægur. Ég vona þess vegna að þetta gerist fljótt svo ég geti notið þess sem eftir er. Miðað við hvað tíminn hefur liðið fáránlega hratt þá verða þessir þrír mánuðir mjög fljótir að líða og ég verð komin heim áður en ég veit af.
Hér kemur svo bloggið sem er buið að vera tilbúið í viku en ég gat ekki postað því útaf öllu sem gekk á. Afsakið lengdina. Thetta er mjog langt blogg og naestum myndalaust en eg vona ad thad se i lagi svona einu sinni haha.
Ég skemmdi næstum myndavélina svo þið fáið næstum engar myndir fyrr en í apríl. Frekar svekkjandi að eiga engar myndir frá um 2 mánuðum af dvölinni minni hér en ég verð bara að sætta mig við það.
Fyrir þá sem eru ekki búnir að lesa síðasta blogg sem ég postaði þá er þetta blogg semsagt um febrúar og það sem búið er af mars, en síðasta blogg var um janúar. Nóg að skrifa um semsagt og ég er pottþétt að gleyma einhverju. Vona bara að ég sé ekki að sleppa neinu mikilvægu.
Þegar frebrúar byrjaði þá byrjaði skólinn. Það er reyndar ekkert svo slæmt því núna hef ég meira að gera á daginn. Ég er í year 13 núna sem er síðasta árið í high school. Fögin sem ég valdi mér fyrir þetta ár eru PE, Outdoor Education, history, geography, media studies og english. Ég er bara nokkuð sátt við þessi fög. Útskýri þau betur seinna í þessu bloggi.
Í fyrstu skólavikunni tókst mér að slasa mig. Ég fékk reyndar bara smá skurð á næstminnstu tána þegar ég var að spila fótbolta í outdoor ed. Um kvöldið var táin svo orðin þreföld og dökkfjólublá, næstum svört! Ég fékk líklega sýkingu en fór ekkert til læknis til að fá sýkalyf, hjúkkan í skólanum tók care af þessu bara (ég hugsaði um þessa setningu í svona 3 mín og veit ekkert hvernig ég á að koma þessu á almennilega íslensku. Sorry, mamma.) Þetta lagaðist frekar hratt samt. Nógu hratt svo að eftir 3 daga þurfti ég ekki lengur umbúðir og slapp ekki við að vera í skólasandölum. Svekkjandi! Táin mín er reyndar ennþá rauð og smá bólgin held ég en ég finn ekkert fyrir því. Þetta hljóta að vera góðar fréttir fyrir Áslaugu sys samt því nú er loksins einhver annar sem slasar sig! Þetta var samt bara tá en einhvers staðar verð ég nú að byrja.
Á föstudeginum í sömu viku var svo swimming sports day. Þetta var sem sagt innanskólakeppni í sundi sem er haldin einu sinni á ári. Þar sem ég er í PE þurfti ég að hjálpa til við að setja allt upp. Ég þurfti ekki að vera í skólabúning og þurfti ekki að fara í neina tíma. Sweeeet! Þetta var frekar gaman bara. Var bara að hjálpa til við að taka tíma og svoleiðis og segja keppendum í hvaða sæti þeir lentu. Fékk líka fría pizzu og svo fékk ég nýtt hlýrabolafar á bakið. Verst að sumarið er að verða búið svo ég næ líklega ekki að jafna út þessar tanlínur mínar.
Í vikunni þar á eftir voru svo athletics days sem er alveg eins nema það er keppt í frjálsum íþróttum. Tvo hálfa daga í röð fékk ég frí í tímum til að hjálpa til. Ekki leiðinlegt! Ég og ein önnur stelpa áttum að sjá um spjótkastið. Kennarinn sem var líka að sjá um það fékk víst spjót í lærið og við misstum af því! Ég veit reyndar ekki hvort ég hefði viljað sjá það gerast og greyið kennarinn fékk yfir 1 cm djúpan skurð. Ég nenni varla að lýsa þessum dögum eitthvað vel. Þetta var bara mjög gaman og mikil stemning í skólanum. Það var tónlist í gangi og svo var verið að selja drykki og ís og svona. Þar sem það var steikjandi hiti eyddum við góðum tíma í að reyna að kæla okkur niður með klökum haha. Það var líka þema sem var ‚day at the beach' svo að þeir sem voru að keppa áttu að dressa sig upp eins og þeir væru að fara á ströndina. Frekar spes en samt gaman og skemmtilegt að upplifa eitthvað nýtt. Ég tók engar myndir auðvitað en ég held ég sé tögguð í nokkrum á facebook. Það eru líka myndir frá bæti atheltics day og swimming sports á skólatölvunum svo ég fer kannski með usb lykil í skólann og sé hvort ég geti stolið þeim hah.
Mig minnir að það hafi verið í sömu viku eða vikunni áður sem ég fór með Kaelu, hostsystur minni, í Spookers! Það er svona draugahús og fleira aðeins fyrir utan South Auckland. Það er 16 ára aldurstakmark inn og það er hægt að velja um nokkur mismunandi ‚activities'. Það er t.d. haunted house, freaky forest á veturna, corn evil á sumrin, e-ð 3D dót sem ég fór ekki í og ég held það hafi verið eitt í viðbót. Í þessu öllu eru leikarar í búningum sem bregða manni og hræða mann svo þetta var margt mjög raunverulegt ! Þetta var ferð hjá vinnunni hennar Kaelu og ég fékk að fara með. Við byrjuðum á að borða. Ekkert smá flott hlaðborð sem við fengum! Á meðan við borðuðum voru svo leikarar labbandi um að reyna að hræða fólk. Við fórum vanalega á klósettið í hópum því við vissum aldrei hvar einhver leikari myndi stökkva fram.
Við byrjuðum svo á Haunted House. Það er semsagt gamalt geðveikrahæli sem var breytt í draugahús! Við löbbuðum þar í gegn í 6 manna hópum. Mér fannst þetta meira skemmtilegt en scary bara. Fannst samt mjög óþægilegt þegar einhver kom aftan að mér eða greip í ökklann á mér. Þarna voru líka tveir trúðar og þeir sem þekkja mig vita að ég er alls ekki hrifin af trúðum! Þessir voru meira að segja verri en McDonald's trúðurinn! Það þarf kannski ekki mikið til en samt..
Eftir smá pásu fórum við svo í the corn field. Það er risastórt völundarhús í maisakri! Á meðan við biðum eftir að komast inn var maður labbandi meðfram röðinni með keðjusög að bregða fólki. Hann labbaði svo að mér og tók utanu um andlitið á mér og skildi eftir skemmtilegt svart fingrafar á enninu. Einhver sagði honum svo að ég væri frá Íslandi. Hann sneri sér þá við og horfði á mig í smá stund. Hann datt næstum alveg úr karakter held ég og spurði svo hvort maður þyrfti ekki að vera feitur til að lifa af á Íslandi. Hann tók svo utan um axlirnar á mér, lyfti mér upp og lét mig svo detta! Gaman að því. Ég sá líka pokarottu í fyrsta skipti meðan við biðum þarna! Hah þær eru víst út um allt hér á Nýja Sjálandi en ég hafði aldrei séð neina áður. Það er stundum talað um þær sem litlar hraðahindranir því flestum er alveg sama þó þeir keyri yfir þær haha.
Allavega var völundarhúsið frekar töff! Ég man ekki eftir öllu þar inni en á einum stað stoppuðum við á svona frekar opnu svæði og það voru nokkrar leiðir þar út. Við heyrðum svo einhvern hvísla „You're surrounded!" og beint eftir það hoppuðu nokkrir menn út úr maisplöntunum með keðjusagir. Hah mér brá ekkert smá! Það var auðvitað búið að taka keðjurnar af samt.Við löbbuðum svo aðeins lengra og þá hoppaði maður niður af palli og lenti beint fyrir framan okkur. Það hefði ekki verið það hræðilegt ef þetta hefði ekki verið dvergur sem náði mér rétt fyrir ofan mitti! Ekki það að ég hafi eitthvað á móti dvergum, alls ekki, við bjuggumst bara alls ekki við þessu. Eftir smá stund kom svo par labbandi fyrir hornið og þau sáu ekki manninn fyrr en hann stóð alveg við þau og öskraði. Ekkert smá fyndið!
Þetta var mjög gott kvöld bara og ég fer aftur þangað með AFS einhvern tímann. Ég er nefnilega nýi skipuleggjarinn fyrir minn chapter svo greyin hinir nemarnir fá ekkert val.
Ég hef svo verið að vinna í því að fá mína 40 community service hours og ég held ég sé bara næstum búin. Eina helgina fór ég á markað með afs til að hjálpa til við að leita að fósturfjölskyldum fyrir nýju nemana sem komu í lok febrúar. Mér leið svolítið eins og ég væri að selja þræla haha! Við stóðum þarna og reyndum að sannfæra fólk til að taka að sér skiptinema. Aðal AFS konan talaði stundum um nemana eins og þeir væru bara hlutir og það vantaði bara eitthvað eins og „Án MSG!" á blöðin haha. Þetta var samt ekkert alslæmt, okkur fannst þetta bara fyndið. Við fundum líka nokkrar fjölskyldur sem var gott!
Aðra helgina fór ég svo að selja pylsur fyrir dansstúdíóið hennar Michelle og fékk nokkrar klst fyrir það! Vorum að selja fyrir utan dýrabúð. Það voru svoo sætir hvolpar þar hah! Hér eru nefnilega hundar og kettir í flestum dýrabúðum sem er öðruvísi en ég var vön á Íslandi.
En nóg um eitthvað svona leiðinlegt. Sunnudaginn 21. febrúar fór ég nefnilega og prófaði brimbretti! Josh, vinur Philipps frá Þýskalandi lofaði fyrir löngu að kenna mér svo við fórum til Piha svo ég gæti prófað. Þetta var semsagt í annað skipti sem ég prófa brimbretti. Fyrsta skiptið var með gamla hostpabba hennar Elju frá Belgíu og hann kenndi okkur ekki beint hvernig ég að gera þetta heldur lét okkur bara fá bretti og leyfði okkur að prófa. Núna lærði ég allavega grundvallaratriðin. Ég var á svona meðallöngu og léttu bretti sem er víst mun auðveldara en það er gott meðan maður er að læra allavega. Öldurnar voru risastórar þennan dag, alltof stórar til að læra á. Piha er bara mjög erfið strönd til að læra á hah því þar eru svo stórar öldur og sterkir straumar. Við fórum bara nálægt ströndinni og ég æfði mig á litlum öldum. Hann ýtti mér reyndar inn í öldurnar til að byrja með því það er frekar erfitt að ná öldu sjálfur svona í fyrsta skipti hah. Ég var samt ekkert smá stolt því mér tókst að standa upp! Og það nokkrum sinnum sem hlýtur að teljast gott fyrir fyrsta/annað skipti.
Eftir smá matarpásu prófaði ég svo aftur og mér tókst að ná nokkrum öldum sjálf! Allt pínulitlar öldur reyndar en þetta er allavega góð byrjun. Veit reyndar ekki hvort ég fái eitthvað annað tækifæri til að surfa meðan ég er hér í NZ. Ef ekki, þá redda ég mér bara þykkum wetsuit og bretti og æfi mig þegar ég kem heim til Íslands. Ég gæti mögulega dáið úr kulda í leiðinni en það hlýtur að vera þessi virði haha.
Alveg ad missa jafnvaegid.. datt samt ekki!

Piiinulitil alda haha en eg stod ad minnsta kosti upp!
Skólinn hélt svo bara áfram. Það hefur örugglega fullt skemmtilegt gerst í skólanum sem mig langar að segja frá en dagarnir bara renna saman og ég man ekkert hvað gerðist eða hvenær eitthvað gerðist. Það rifjast vonandi upp fyrir mér einhvern tímann og ég segi ykkur nýsjálenskar skólasögur þegar ég kem heim til Íslands. Það eina sem ég man í augnablikinu er að í fyrstu skólavikunni voru allir strákarnir kallaðir saman inná sal. Eftir nokkrar mínútur komu þeir svo allir skælbrosandi út því það var búið að breyta skólabúningareglunum haha! Núna þurfa strákarnir ekki lengur að gyrða bolina ofaní buxurnar nema við sérstök tilefni. Haha þetta var víst söguleg stund.
27. febrúar átti Lóa litla sys svo afmæli! Til hamingju með það elskan min <3 Fáránlegt að litla gerpið sé orðið 13 ára, ég trúi því varla. Tíminn líður of hratt.
Ég fór allavega til Waiheke island þessa helgi með Michelle. Það voru nefnilega ‚races' i gangi semokkur langaði að sjá á sunnudeginum! Það eru semsagt alls konar keppnir á ströndinni... mótorhjól, bílar, hestar og fullt fleira. Við fórum fyrir á laugardeginum og hittum hostsystur mína sem býr þarna á eyjunni. Við fórum svo með henni og kærastanum hennar til að horfa á kappakstur á „dirt track." Ég held það hafi verið í mesta lagi 10 manns þarna að horfa hah en þetta var mjög gaman samt! Langskemmtilegast þegar bílarnir klessa á eða detta í sundur.Við leigðum svo myndir um kvöldið og spjölluðum bara og svona.
Svo kom jarðskjálfti. Ekki á Waiheke sko heldur í Chile eins og örugglega allir vita. Útaf þessum jarðskjálfta átti fljóðbylgja að hitta alla austurströnd Nýja Sjálands og það fyrsta sem ég heyrði þegar ég vaknaði á sunnudeginum var að það væri tsunami alert. Í sjónvarpinu var endalaust talað um hvað þetta væri hættulegt og að allir ættu að halda sig frá ströndinni. Auðvitað var hætt við alla dagskrána fyrir daginn því það átti allt að vera á ströndinni! Við drifum okkur út til að geta séð þegar aldan kæmi og löbbuðum niður að strönd til að fygljast með. Já, ég fór niður að strönd til að horfa á flóðbylgju! No worries samt, við vorum í ca 25 metra hæð yfir sjávarmáli held ég. Við biðum og biðum og aldan var orðin 2 klst of sein! Sjórinn var alveg sléttur og bara pínulitlar öldur af og til. Við sáum svo litla dökka línu færast nær og nær ströndinni. Svo komu þrjár pínulitlar öldur í röð og svo var þetta búið! Þessi rosalega flóðbyglja var bara ca 10 sentimetrar haha! Ég get þó sagst hafa lifað af flóðbylgju sem er meira en þið getið sagt.
Hræðilegt með jarðskjálftann í Chile samt, sérstaklega þar sem ég þekki nokkra þaðan! En það er í lagi með fjölskyldur þeirra sem er gott.
Helgin þar á eftir var svo frekar góð bara! Moritz frá Þýskalandi bauð nokkrum skiptinemum í sundlaugapartý heim til sín. Hann býr í norðurhluta Auckland þar sem ríka fólkið á heima hah. Fullt af risastórum og flottum húsum og svoleiðis. Húsið hans var sko engin undantekning! Þau eiga sundlaug, heitapott, fjórhjól, tvo asna og ég veit ekki hvað og hvað haha. Húsið var svo risastórt og ekkert smá flott og allt inní því fjarstýrt eða stýrt með snertiskjám á veggjunum. Á neðstu hæðinni var svo bíóherbergi með svona tjaldi eins og í alvöru bíói sem var stærra en herbergisveggurinn minn! Og auðvitað voru nokkrir hægindastólar þar líka. Mjög mikil breyting að fara frá West Auckland til North Shore! Sérstaklega að koma úr mínu húsi sem er ekki tilbúið og í þetta hús haha!
Við byrjuðum á að heilsa upp á asnana og prófuðum svo fjórhjólið. Það var svoo gaman! Fórum samt ekkert of hratt þvi samkvæmt AFS megum við víst ekki fara á fjórhjól nema við búum hjá fólki sem á svoleiðis. Svo hoppuðum við útí sundlaugina og spiluðum rugby! Haha að spila rugby í sundlaug er alls ekki auðvelt. Við fylgdum ekkert rugby reglunum því það gekk ekkert upp. Alltaf þegar ég náði boltanum tók einhver utan um lappirnar á mér og bara dró mig niður. Svindl haha!
Eftir það pöntuðum við pizzu og sátum og spjölluðum bara. Það voru nokkrir nýir nemar þarna, enginn úr mínum chapter samt. Það var gaman að hitta hin öll aftur líka þvi það var svo langt síðan ég hitti aðra skiptinema, fyrir utan Elju. Fórum svo aftur í sundlaugina og eftir smá meira af rugby og sundi fórum við inn að horfa á mynd í bíóherberginu. Ég sofnaði þegar ca 10 mínútur voru búnar af myndinni haha! Morguninn eftir eldaði Mortiz svo handa okkur morgunmat og svo fórum við aftur í sund haha. Hostmamma Elju kom svo og sótti okkur um kl 1. Ég náði að fara smá á fjórhjólið aftur áður en hun kom :p Við keyptum svo hádegismat og settumst við ströndina og borðuðum. Restin af deginum fór svo bara í rólegheit og leti.
Á sunnudeginum var svo AFS chapter meeting sem var bara eins og allir hinir fundirnir. Éta - spjalla - éta meira - fara heim.
Svoooo var það helgin fyrir viku. Á föstudaginn fór ég í e-ð afmælispartý sem var bara mjög gaman. Laugardagurinn fór svo í leti eins og svo oft áður á sunnudeignum fór ég svo á Kumeu Show. Það er eiginlega húsdýrasýning bara. Fólk var þarna mætt með geitur, kýr, hænsni, endur og fleiri dýr til að sýna þau. Þetta var svipað og hundasýningar heima bara haha! Svo voru alls konar keppnir í gangi, t.d. hver væri fljótastur að raka kind og svoleiðis. Svo var líka markaður þarna og nokkur tívolítæki. Við misstum svo af kindakapphlaupinu haha. Mjöög nýsjálenskt allt. Hostmamma mín var með myndavél svo ég tók myndir á hana. Þær koma vonandi á facebook fljótlega.
Og þar hafiði allar helgarnar mínar. Ég ákvað að geyma skólann þar til síðast því að eins og ég sagði þá man ég ekkert hvað gerðist hvenær því þetta rennur bara allt saman.
Skólinn núna er allavega betri en í fyrra finnst mér. Ég er mjög sátt við fögin mín bara. Frekar svekkjandi að Outdoor Ed hafi verið breytt úr útivistartímum í venjulega bóklega íþróttatíma. Þetta fag hefur alltaf verið svona leadership fag og krakkarnir gera alls konar sniðugt og fara svo í útilegu. Núna er Outdoor Ed og PE næstum alveg eins haha! P.E. er samt mun strangara og erfiðara. Þar þarf ég bæði að gera rannsókn á offitu barna í Nýja Sjálandi sem ég veit ekki alveg hvernig verður, og svo erum við að læra blak. Við þurfum að æfa allar hliðar á íþróttinni bara, búa til plan með 10 ‚sessions' til að bæta okkur og svoleiðis. Frekar gaman bara en ég er hræðileg í blaki haha! Í OED er ég að gera pretty much það sama nema við erum að bæta okkur í badminton en ekki blaki. Það er ekki alveg jafnstrangt samt og við förum ekki eins mikið í smáatriði.. erum aðallega bara að leika okkur að spila í tímum!
Í ensku var ég sett í léttari enskubekkinn. Fyrst var ég í erfiðari bekknum en ég var færð yfir því að það var einfaldlega of mikið að gera þar og heimanám og vinna myndi taka allan minn tíma haha. Ég er bara að lesa texta sem tengjast mótmælum og skrifa um þá. Er búin að læra e-ð um Ameríska sögu haha og læra um ræður og e-ð svoleiðis úr henni. Sá hluti er búinn núna samt.
Í media studies erum við að læra um sci-fi myndir! Erum semsagt bara að horfa á myndir eins og The Matrix, Blade Runner, Equilibrium og svoleiðis og tala um þær og analyse-a.
Í sögu er ég að læra um sögu Nýja-Sjáland sem er mjög áhugavert finnst mér! Þó að saga landsins sé fáránlega stutt þá er þetta ekkert svo auðvelt fag en mér finnst það mjög skemmtilegt samt. Frekar skrýtið þar sem saga hefur aldrei verið uppáhalds fagið mitt haha.
Svooo er ég í geography! Erum þar að læra um ströndina og allt sem tengist henni. Getur verið frekar leiðinlegt en tímarnir eru bara allt í lagi. Við förum líka í tvær dagsferðir í þessu fagi haha. Núna síðasta föstudag var líklegast skemmtilegasti geography tíminn hingað til. Við vorum bara að skoða staði á google earth og við fundum húsið mitt á Íslandi! Haha allur bekkurinn sá semsagt hvar ég á heima. Við fórum svo beint frá mínu húsi að húsi hjá stelpu í bekknum og sáum þá hvað Auckland er miiiklu þéttbýlli en Reykjavík! Ekkert smá mikill munur haha. Við kíktum svo á Smáralind í lok tímans því allir vildu sjá mallið sem er í laginu eins og typpi. Vaaaandræðalegt! Hefði ekki átt að missa það útúr mér haha en þetta var frekar fyndið samt. Held ég verði núna að finna eitthvað gott um Ísland til að bæta þetta upp.
Mér finnst svo skrýtið að eftir þetta ár fara krakkarnir hér í háskóla en ég á ennþá 3 ár eftir af menntaskóla! Þeim finnst það öllum mjög skrýtið líka. Ég kvarta samt ekki því það er svo miklu skemmtilegra í menntaskóla á Íslandi heldur en hér haha! Skólinn hér minnir mig oft á grunnskóla, allavega unglingadeild. Það er eiginlega ekkert félagslíf hér og allir klúbbar eru bara fyrir krakkana sem eru í klúbbunum. Það er kannski fullt að gerast eftir skóla en maður tekur ekkert eftir því nema maður sé þátttakandi í því. Hér er líka bannað að fara útaf skólalóðinni, það eru alltaf fengnir forfallakennarar ef einhver kennari er veikur og mér finnst kennararnir oft tala við nemendurna svipað og í grunnskóla. Haha frekar erfitt að útskýra. Mér finnst krakkarnir hér frekar barnalegri en heima eiginlega. High School er btw fyrir year 9 - 13. Núna eru krakkrnir í year 9 á sama aldri og Lóa litla sys, þ.e. þau verða 13 ára á þessu ári. Mér fyndist ekkert smá skrýtið ef við tvær værum í sama skóla! En háskóli hér er held ég svipaður og menntaskóli heima - það er þá sem allt verður skemmtilegt haha. Ekki misskilja mig samt, skólinn hér er alls ekki svo slæmur! Mér finnst þetta allt mjög eðlilegt núna og ég hef ekkert að kvarta undan. Bara gaman að prófa eitthvað nýtt og ég held ég muni örugglega sakna skólans hérna smá þegar ég fer heim.
Það byrjaði annars nýr strákur í skólanum núna sem vissi augljóslega ekkert um Ísland. Hann spurði mig hvort það væri rafmagn á Íslandi og hvort við ættum bíla! Hann var líka mjög hissa þegar ég sagði að við byggjum bara í venjulegum húsum því hann sá fyrir sér litla trékofa dreifða um allt landið í staðinn fyrir borgir eða bæi. Alltaf heyrir maður eitthvað nýtt!
Jeee ég er annars ekki eins upptekin og ég virðist vera. Ég geri eiginlega ekkert á daginn eftir skóla haha en kannski breytist það núna þegar ég er flutt .. aldrei að vita. Ég bar alltaf út fyrir hostsystur mína einu sinni í viku samt. Fékk ekkert mikið borgað fyrir það en það var þó einhver peningur! Og talandi um peninga þá eru seðlarnir hérna ekki úr pappír eins og í flestum öðrum löndum! Neib, þeir eru úr plasti! Mjög þunnu plasti bara svo það er ekki hægt að rífa þá. Spes.
Ég hef ekki mikið planað fyrir næstu vikurnar. Ég veit ekki hvenær ný fjölskylda finnst svo eina sem ég hef planað er skóli. Eftir 2 vikur er samt South Island Tour!! Get ekki beeðið, held það verði æði! Það sýnir samt líka hvað það er fáránlega stutt eftir af dvölinni minni hérna!
Fleira er svo ekki skrifað í fína nýsjálenska slökkviliðsmannadagatalið mitt sem ég fékk í jólagjöf, fyrir utan áminningar um að tékka á batteríinu í reykskynjaranum mínum.
Ég held það sé ekki fleira að sinni.
Commentaðu. Án gríns, commentaðu.
Ég vil að allir sem lesi þetta commenti, sama hvað ég þekki þá vel. Hugsið ykkur ef einhver gaur sem ég þekki ekki neitt hafi lesið hvert einasta blogg sem ég hef skrifað. Ég kem svo heim í sumar og fæ mér Metró því það er ekkert McDonald's. Einhver gaur þar inni, sem við skulum kalla Pétur, sér mig, veit hvað ég heiti og veit allt sem ég hef verið að gera síðasta árið en ég hef ekki huuugmynd um hver hann er! Það væri frekar óþægilegt! Líka fyrir Pétur því hann myndi kannski vilja tala við mig en gæti það ekki því það væri of vandræðalegt.
Svo ekki vera eins og Pétur og commentaðu. Ég veit þetta hljómar asnalega en samt, þetta er satt haha og ekki vera feimin!
Sjáumst á Metró
-Þóra Margrét
Betra er seint en aldrei
Bara fjórir mánuðir eftir! Ég trúi því ekki ... tíminn líður of hratt!
Eftir síðasta blogg lofaði ég að það næsta myndi ekki koma seint. Ég sveik það loforð heldur betur. Það eru núna um tveir mánuðir síðan ég bloggaði og ég verð að viðurkenna að mér líður frekar illa yfir því. Ég hef bara einfaldlega ekki nennt að setjast niður og skrifa um hvað ég hef verið að gera. Ég frestaði þessu svo aftur og aftur og núna þarf ég að skrifa um tvo heila mánuði. Great. Ég man ekkert allt sem ég gerði þessa tvo mánuði en ég geri mitt besta til að segja frá. Mig langar nefnilega að hafa bloggið mitt frekar nákvæmt svo það verði skemmtilegra fyrir mig að lesa það þegar ég kem heim. Þetta verður semsagt langt blogg en þið eruð örugglega orðin vön því.
Þar sem ég var komin með blogg sem var yfir 6 blaðsíður í word ákvað ég að skipta því í tvennt svo fólk myndi nenna að lesa þetta. Núna kemur semsagt blogg um janúar og eftir viku kemur blogg um febrúar og það sem verður búið af mars. Ég get meira að segja staðið við það loforð því að bloggið er tilbúið.
Byrja þetta á útilegu sem ég fór í í janúar. Ég skrifaði niður á hverjum degi hvað við gerðum svo þessi hluti verður frekar nákvæmur. No worries samt, ætla ekki að segja ykkur frá þvi hvað ég gerði á hverjum degi síðustu tvo mánuðina.
Myndavélin mín bilaði strax í byrjun ferðarinnar svo næstum allar myndirnar mínar eru úr fókus. Ég setti þær samt í bloggið svo þið getið séð svona næstum hvernig allt var þarna. Óskýrar myndir eru betri en engar myndir! Mjög svekkjandi því ég hefði getað tekið ótrúlega flottar myndir á sumum stöðum. Vélin er enn biluð og ég hef þess vegna ekki tekið neinar myndir eftir að ég kom heim úr þessari útilegu. Þarf að reyna að bæta úr þessu þar sem ég er vön að taka slatta af myndum.
Aaaaaaallavega.. útilega!
Við lögðum af stað sunnudaginn 10. Janúar. Markmiðið var að taka road trip um hluta af austurströnd norðureyjarinnar. Ég, hostforeldar mínir, Kaela (hostsystir mín) og Nick, kærastinn hennar, lögðum af stað um klukkan fjögur. Þar sem ég var minnst þurfti ég að sitja í skottinu. Bílinn var troðfullur og ég gat varla hreyft mig þarna aftur í en þetta var mjög kósý. Fekk tjaldstól í hausinn í hverri beygju samt en það gerði bílferðina bara skemmtilegri ef eitthvað er. Stoppuðum í Pokeno sem er rétt fyrir utan Auckland og keyptum ís þar. Held ég hafi aldrei farið út úr bænum án þess að fá ís í Pokeno. Ég las svo bara New Moon alla leiðina til Rotorua. Við stoppuðum samt á nokkrum stöðum þar á milli en ég man ekkert hvar! Rotorua er týpískur túristabær og helst þekktur fyrir hverasvæði. Það þýðir auðvitað hveralykt en það var ekkert nýtt fyrir mér. Tjaldstæðið sem við vorum á var samt í hinum endanum á bænum svo við sluppum við lyktina. Þetta var frekar töff tjaldstæði með sundlaug, leikjaherbergi, eldhúsi og trampolíni. Vorum þarna bara eitt kvöld svo ég fékk ekkert tækifæri til að prófa sundlaugina. Ég sá hins vegar broddgölt sem bætti það upp haha! Snerti hann og allt. Eftir að hafa tjaldað, hoppað smá á trampolíninu og étið kvöldmat fórum við bara að sofa. Þetta var ííísköld nótt og heimska ég gleymdi sokkum! Ég nota nefnilega eiginleg aldrei sokka hér, fór svo í útilegu og tók ekki með mér einn sokk! Good job.

Fyrsta skipti á ævinni sem ég sé broddgölt!
Á mánudeginum skoðuðum við svo Rotorua. Löbbuðum um og skoðuðum bæinn bara og fórum á Subway. Fengum okkur svo kaffi og kakó á $2 sem er mjöög ódýrt og Nick keypti skopparabolta handa öllum haha. Eftir það keyrðum við bara meira. Aftur var ég með lítið pláss aftur í en slapp við tjaldstóla í þetta skiptið. Stoppuðum í Opotiki til að éta. Sá ekkert meira af þeim bæ en bara kaffihúsið og klósett. Ég held samt að ég hafi séð meiri hlutann af bænum bara við að keyra í gegn.
Næsti áfangastður var Gisbourne. Tjaldstæðið þar var fullt svo við keyrðum lengra. Það var grenjandi rigning svo við ákváðum að leigja okkur litla kofa í staðinn fyrir að reyna að koma upp tjöldum. Ég, Nick og Kaela vorum saman í húsi. Nick var svo sniðugur að taka fullt af dvd myndum með en svo gleymdist ferða dvd spilarinn auðvitað! Eyddum þvi kvöldinu bara í að spila og spjalla. Nick gerði btw grín að mér alla ferðina, aðallega því ég er svo lítil.

Tekið út um bílgluggann .. frekar random.
Við byrjuðum þriðjudaginn á því að fá okkur egg og beikon í morgunmat og keyrðum svo tilGisbourne. Skoðuðum fyrst einhverjar tvær styttur og klifruðum svo í risastóru tré. Það var samt svo kalt og hvasst að við ákváðum að skoða bæinn í staðinn. Við byrjuðum á að kaupa ,leyfi' til að tjalda á stað sem er ekki viðurkennt tjaldstæði.. frekar erfitt að útskýra haha. Löbbuðum svo um bæinn bara og fengum okkur ís á McDonald's.. klikkar seint! Mér fannst Gisbourne vera mjög fínn bær bara, hefði viljað sjá meira af honum eeen það var ekki tími því við þurftum að keyra meira. Eyddum mjög miklum tíma í bílnum haha. Stoppuðum næst við lengstu bryggju landsins sem er um 600 metra löng! Við löbbuðum hana á enda í skítakulda og roki. Ég fór meira að segja í síðbuxur og hettupeysu og mér var samt kalt! Það var samt svo ótrúlega fallegt þarna.

Strönd rétt hjá styttunum sem við skoðuðum.

Augljóslega mikill vindur og enginn fókus hah en tréð var frekar stórt!

Bryggjan

Bryggjan og ströndin hjá henni.. og Nick haha.

Jaaá ég tek frekar random myndir.
Keyrðum svo til Tokomaru Bay og tjölduðum þar við ströndina. Þar var ekkert klósett, ekkert vatn og ekki neitt hah. Ekta útilega bara. Það kom mér reyndar á óvart að það var símasamband þarna! Hér á Nýja Sjálandi er nefnilega eiginlega ekkert símasamband nema inni í bæjunum sem getur verið mjög óþægilegt, en það venst. Ég las annars bara allan daginn inni í tjaldi hah á meðan hinir sváfu. Nick reddaði okkur öllum svo þykkum sokkum sem komu að góðum notum í kuldanum! Ótrúlegt að það hafi verið svona kalt um hásumar! Reyndum að spila um kvöldið en það byrjaði að rigna svo við fórum bara að sofa. Ég vaknaði svo um miðja nótt með eina hliðina á tjaldinu í andlitinu því það var svo mikið rok! Engu að síður frekar kósí að vera með mitt eigið tjald.

Þar sem við tjölduðum.

Tjaldið mitt um kvöldið
Það fyrsta sem ég sá þegar ég vaknaði á miðvikudeginum var smá gras fyrir utan tjaldið mitt og svo ströndin. Ekkert smá fallegt þrátt fyrir rok. Byrjuðum daginn á löngum göngutúr til að leita að vatni. Við sáum allan bæinn á þessari göngu. Þó þetta væri pínulítill bær þá fannst mér hann ekkert smá töff! Fólkið þar ferðaðist aðallega um á hestum og ég er ekki frá því að hver einasta manneskja sem við sáum hafi verið í gúmmístígvélum.
Við ætluðum að labba að einhverri bryggju en hættum við því hún var of langt í burtu. Gáfumst bara upp og löbbuðum til baka. Þar sem þetta var pínulítill bær þá þurftum við ekkert að leita til að finna pub. Fórum þar inn, stálum vatni frá þeim og spiluðum pool. Ég eyddi svo meiri hluta dagsins í að lesa bara. Um kvöldið ætlaði hostpabbi minn svo að vaska upp. Þar sem við vorum ekki með nóg vatn til þess þá ákvað hann að gera það bara í sjónum. Það endaði heldur betur skrautlega! Hann ákvað að grafa holu í sandinn, setja fötuna með diskunum í ofan í holuna og bíða eftir öldu. Aldan kom en þegar sjórinn rann til baka fóru allir diskarnir með! Haha við hin sátum bara hjá tjöldunum og hlógum að honum á meðan hann hljóp fram og til baka til að ná diskunum aftur. Ég held hann hafi náð þeim öllum á endanum en þetta var góð skemmtun.

Þið eruð örugglega komin með leið á landslagsmyndum en þetta er tekið frá pub'num.

Annað skiptið á ævinni sem ég sé broddgölt!

Jáb, fólkið ferðaðist stundum um á hestum.
Um kvöldið keyrðum við svo að bryggjunni. Hún var eeeldgömul og alveg að hrynja svo það var búið að byggja nýja við hliðina á. Rétt hjá bryggjunni sáum við svo múrsteinsvegg með risastóru gati hah. Skoðuðum það nánar og sáum þá eldgamalt hús og gamla lestarteina. Alls staðar voru holur í veggjunum og þetta var frekar creepy í myrkrinu! Sáum líka eldgamlan bíl. Rúðurnar voru brotnar og hann var alveg ryðgaður. Ég var ekki með myndavélina á mér þarna og sá ekkert smá eftir þvi að hafa ekki tekið hana með!
Við fórum svo aftur á sama pub og fyrr um daginn. Allur bærinn var þar saman kominn að syngja í karaoke. Flestir sem bjuggu í þessum bæ voru maori og það var augljóst að allir þekktu alla! Það kom mér á óvart hvað margir þarna sungu ótrúlega vel! Einn maðurinn var svo endalaust að reyna að fá okkur til að fara upp og syngja og á endanum létu hostmamma mín og Kaela eftir. Okkur hinum fannst mjög fyndið að horfa á þær syngja hah en þetta var gaman. Þegar við fórum svo aftur að tjöldunum var alveg stjörnubjart. Það var svooo fallegt. Stjörnurnar hér eru auðvitað allt öðruvísi en þær sem maður sér frá Íslandi. Hér sér maður alveg vetrarbrautina og þar sem við vorum var engin ljósmengun. Ég held ég hafi aldrei séð jafnmargar stjörnur áður. Vildi að ég hefði getað tekið myndir hah. Ég skreið svo bara inn í tjald og fór að lúlla.
Á fimmtudeginum byrjuðum við á að kíkja aftur á gömlu lestarteinana og það allt svo við gætum tekið myndir.

Holan í veggnum

Inside

Bíllinn

The front seat


E-r hluti af gamalli lestarstöð held ég. Veggurinn útá enda er brotinn!

Ekkert of óskýr mynd af bryggjunni.
Við héldum svo keyrslunni áfram og stoppuðum í öðrum pínulitlum bæ til að borða. Hér er rosalega mikið af svona litlum bæjum sem saman standa aðallega af nokkrum húsum, fish n chips shop og supermarkaði. Ég veit ekki hvað ég hef keyrt í gegnum marga svoleiðis bæi síðan ég kom hingað og ég hef samt ekki ferðast það mikið um landið. Svona er bara Nýja Sjáland - litlir bæir, langt á milli þeirra og ekkert símasamband. Samt æði! Ég man ekkert hvað bærinn sem við stoppuðum í heitir, man bara að við leikvöllinn í bænum var skilti sem á stóð „Childrens Playground - NO HORSES". Langaði svo að taka mynd en gleymdi því. Er enn svekkt yfir því en ég kemst yfir það. Vonandi.
Við keyrðum næst að East Cape sem er austasti hluti landsins. Þar er viti sem við hefðum getað labbað að en við nenntum því ekki. Það var samt svo ótrúlega fallegt þarna! Tók nokkrar myndir en þær eru auðvitað ekki í fókus.
Tjölduðum svo á einhverjum stað sem ég veit ekkert hvað heitir. Spiluðum um kvöldið bara og svo fórum ég, Nick og Kaela í vatnsblöðruslag. Ég tapaði.

Vitinn
Fallegt!
Daginn eftir keyrðum við svo til Hamilton því hin hostsystir mín, Michelle, var þar hjá frænku sinni. Sá þar minnsta og sætasta hest sem ég hef séð! Við spiluðum svo smá og á einhvern ótrúlegan hátt tókst okkur að koma Michelle og hennar farangri fyrir í bílnum. Keyrðum svo aftur til Auckland eftir fína útilegu. Við gerðum reyndar ekki mikið fyrir utan að keyra og vorum mjög óheppin með veður en þetta var samt alveg ágætt frí.

Folaldið
Ég gerði ekki mikið helgina á eftir. Fór upp á Mt Eden með hostforeldrum mínum samt. Það er fjall í miðri Auckland og ég gat séð yfir alla borgina í myrkri. Rosalega flott að sjá öll ljósin hah og ég sá líka hvað Auckland er stór. Allavega miðað við Reykjavík en það þarf ekki mikið til.
Allavega tók næst við mjööög svo góð vika. Þriðjudaginn 19. janúar fór ég nefnilega til Christchurch að heimsækja Guðmundu - aftur! Mér fannst æðislegt að koma til baka. Ég elska Christchurch og það var mjög gott að hitta Guðmundu aftur. Þetta er ekki allt í réttri timaröð hjá mér - meira bara svona ‚yfirlit' yfir það helsta sem við gerðum hah.
Fyrsta kvöldið fórum við í bíó á Paranormal Activity. Þetta á að vera mjög scary mynd en við hlógum mestallan tímann bara.
Á miðvikudeginum fórum við svo til Hanmer til að fara í hot pools þar. Það var mjög fínt, rándýrt miðað við sundlaugar á Íslandi en samt mjög gaman bara! Það var líka steikjandi hiti þennan dag. Á leiðinni heim stoppuðum við hjá kletti sem er í laginu eins og froskur !
Man ekki alveg hvað við gerðum um kvöldið en við horfðum líklegast á Harry Potter hah. Við leigðum slatta af myndum þessa vikuna og nú höfum við Guðmunda séð allar Harry Potter myndirnar saman. Ég veit ekki alveg hvort það verði að teljast gott eða ekki haha.
Tek það fram að Guðmunda tók allar þessar myndir.

The frog

Við klifruðum upp á hann og þetta er útsýnið frá toppnum.
Við skelltum okkur svo í hjólatúr einn daginn. Hjóluðum niður í miðbæ í grenjandi rigningu. Fengum okkur svo heitt kakó og löbbuðum um og ætluðum svo að hjóla til baka. Okkur tókst að villast og enduðum á að hjóla í endalausa hringi í park þar rétt hjá haha. Sáum sömu klósettin þrisvar og enduðum alltaf á sama stað en við fundum svo rétta leið á endanum! Held þessi hjólaferð gleymist seint en við fengum allavega góða líkamsrækt út úr þessu!
Þessa viku var svo Buskers Festival í gangi í Christchurch. Það voru semsagt götulistamenn út um allt og margir voru ótrúlega góðir! Fórum næstum á hverjum degi niðrí bæ til að horfa á þá haha. Einn gaurinn bað lítinn strák um að hjálpa sér með atriðið sitt. Greyið strákurinn stóð þarna fyrir framan örugglega nokkur hundruð eða jafnvel þúsund manns þegar mávur flaug yfir og skeit á hausinn á honum! Of fyndið. Við sáum líka Heru spila! Hún söng meira að segja nokkur lög á íslensku sem mér fannst frekar töff. Það voru alskonar atriði þarna, nenni ekki að lýsa þeim öllum og ætla bara að leyfa myndunum að tala. 

Guðmunda og Quentin að horfa á Heru

Hera

Hann hoppaði í gegnum húllahringinn, renndi sér á bláa plastinu og lenti ofan í litlu sundlauginni. Spes?

Það var ótrúlegt hvað þessir gátu gert!


Í lokaatriðinu þeirra stóð annar þeirra á haus á höfðinu á hinum! Engar hendur og þeir voru alveg stöðugir. Þeir töluðu með rússneskum hreim allan tímann en sögðu svo ekki fyrr en eftir á að þeir væru Ástralskir!

Þessi var frekar fyndinn. Sagðist brotna auðveldlega því hann væri 'made in China'
Mig minnir að það hafi verið um laugardagsmorguninn sem við vöknuðum eldsnemma til að horfa á Ísland - Danmörk í handbolta. Við rifum okkur á fætur klukkan 6. Við vorum þess vegna mjög svektar þegar við gátum ekki horft á leikinn á ruv.is! Svo kom í ljós að ég hafði reiknað tímamismuninn vitlaust og leikurinn byrjaði ekki fyrr en 8 á nýsjálenskum tíma. Vel gert Þóra, vel gert. Þetta var samt alveg þess virði því að auðvitað unnum við leikinn! Svo var svo langt síðan ég horfði á handbolta að mér fannst þetta bara æði!

Kósí uppí rúmi að horfa á leikinn. Sáum líka íslenskar auglýsingar haha!
Daginn áður en ég fór heim til Auckland fórum við á skauta með fleiri afs krökkum. Strætóbílstjórinn gleymdi að segja okkur hvar við áttum að fara út svo við þurftum að labba lengi, lengi áður en við fundum staðinn. Auðvitað þurfti ég að gera sömu mistökin aftur og gleymdi sokkum! Það reddaðist samt og viðskemmtum okkur vel á skautum. Fengum frítt popp og allt! Toppiði það.
Svo var vikan mín bara næstum búin. Við fórum út að borða á ótrúlega góðum ítölskum stað með öðrum afs krökkum áður en ég hoppaði upp í flugvél og flaug heim til Auckland.

Guðmunda brann. Sorry, varð að hafa þessa mynd með haha!

Ég sólbrennd og tveir aðrir skiptinemar eftir skauta.
Takk æðislega fyrir frábæra viku, Guðmunda min! Og sorry að ég sendi þér yfir 60 sms í röð eitt kvöldið - það var bara til að sýna hvað mér þykir vænt um þig.. eða eitthvað.
Svo var bara sumarfríið mitt hér á Nýja Sjálandi næstum búið! Meira en helmingurinn af dvölinni búinn og bara allt að gerast. Ég og Michelle ákváðum að enda fríið vel og buðum fullt af fólki heim til okkar í vatnsstríð og grill á laugardeginum. Nokkrir afs krakkar komu og svo einhverjir af vinum Michelle. Til að gera langa sögu stutta þá var ég vinsælt fórnarlamb og fékk yfir mig nokkrar fullar fötur af vatni strax eftir nokkrar sekúndur. Allir aðrir lentu svo í því líka hah. Við kláruðum yfir 200 vatnsblöðrur á no time svo við náðum í vatnsslönguna í staðinn. Enduðum þetta svo á grilli og spjalli og fórum svo inn og spiluðum Rock Band. Góður endir á fínu sumarfríi.
Held þetta sé líka góður endir á þessu bloggi. Eftir viku kemur blogg um febrúar. Ég gerði ekki mikið í þeim mánuði samt en samt tókst mér að finna eitthvað til að segja frá!
Ég vil að ALLIR sem lásu þetta commenti. Sama hvort ég þekki ykkur eða ekki. Þið þurfið ekki að skrifa neitt meira en bara ‚ég las' svo ég viti hverjir eru að fylgjast með mér meðan ég er hérna hinum megin á hnettinum.
-Þóra Margrét
P.s. Hvernig er að búa í landi sem er ekki með McDonalds, Burger King eða Wendys?
Taupo, jól, áramót og fleira
Jeebb, bloggið sem ég lofaði að kæmi eftir áramót er loksins komið. Aftur skrifaði ég það hins vegar of seint svo ég er búin að gleyma slatta af því sem ég gerði milli jóla og nýárs. Ástæðan er ekki bara leti heldur kemst ég ekki á netið hvenær sem er. Hef ekki haft nógan tíma á netinu til að setja inn myndir og svona eeen hér kemur þetta loksins.
Allavega, jól og áramót var það. Vikuna fyrir jól fór ég til Taupo með hostforeldrum mínum. Taupo er lítill túristabær við Lake Taupo sem er á miðri Norðureyjunni. Lögðum af stað sunnudaginn 20. desember. Sá dagur fór bara í að keyra eiginlega. Stoppuðum á nokkrum stöðum á leiðinni samt fyrir ís og fish n chips. Kvöldið fór svo bara í rólegheit og Friendsgláp.
Á mánudeginum skoðuðum við Huka falls sem eru stórir fossar bara alveg rétt hjá Taupo. Reyndar virkuðu þeir ekkert svo stórir frá útsýnispallinum eeen þetta var samt mjög flott. Kíktum svo í e-ð hunangshús þar sem maður gat smakkað alls konar hungang haha. Fékk svo hunangsís og sá býflugur.
Þar rétt hjá var svo volcanic centre þar sem maður gat lesið allt um eldgos og farið í einhvern veginn jarðskjálftahermi og fleira. Fór bara ein í það því hostforeldrar mínir nenntu ekki. Nennti varla að lesa allt og tók bara myndir og ákvað að lesa eitthvað af því seinna haha. Hef reyndar ekki enn gert það. Þegar við komum til baka skoðuðum við svo aðstöðuna hjá íbúðinni okkar. Mjög flott íbúð og fyrir utan var sundlaug, heitur pottur og innilaug. Svo vorum við með poolborð, borðtennisborð, hjól, kajaka og fleira. Þetta var samt líka fyrir allar hinar íbúðirnar sem voru frekar margar. Þar sem ég var bara ein með hostforeldrum mínum þarna og þau nenntu ekki að gera mikið þá notaði ég ekki allt af þessu. Frekar svekkjandi að hafa ekki getað prófað kajakana en ég get gert það seinna bara J
Um kvöldið löbbuðum við svo um bæinn og skoðuðum okkur um. Löbbuðum meðfram vatninu og horfðum á sólsetrið. Enduðum svo daginn með því að fá okkur ís á McDonald's! Score!

Huka Falls
Fjöllin hinu megin við vatnið

Sundlaugin

Sólsetrið, held þetta sé uppáhaldsmyndin mín af því :)
Á þriðjudeginum fórum við að teygjustökkstaðnum til að horfa á fólk stökkva. Þar er líka risastór róla sem var frekar töff. Fórum svo í Puzzle World. Gerðum ekkert þar nema bara kaupa kaffi og ís, nenntum ekki í völundarhúsið sem var þar hah. Fannst samt frekar töff að þau voru með svona heimskort uppá vegg svo fólk gæti sett pinna á staðinn sem það kemur frá. Ég var fyrsta manneskjan frá Íslandi! Konunni fannst það ekkert lítið merkilegt haha.
Fórum svo að skoða einhverja virkjun, gamangaman. Maður sá semsagt bara auðan árfarveg en svo nokkrum sinnum á dag opna þau fyrir stífluna og maður getur séð ‚farveginn' fyllast af vatni. Fórum svo á einhvern prawn fishing stað. Ekkert mikið að sjá þar svo við fórum að horfa á fólk í jet boating. Langaði aðeins of mikið að prófa það! Fór reyndar í svoleiðis í Queenstown sem var mjög gaman en þessi virkaði frekar töff. Fáááránlega dýrt samt og svo var ég lika ein.
Kvöldið fór svo bara í rólegheit, bíómyndagláp meðan hjónin skelltu sér í heita pottinn og svo horfði ég á Friends þangað til ég gat ekki vakað lengur.

Teygjustökkstaðurinn

Fyrsti íslenski pinninn :) haha
Miiiiðvikudagurinn var frekar töff. Vaknaði nokkuð snemma miðað við vanalega, borðaði morgunmat og allt þetta venjulega. Keyrðum svo af stað að teygjustökkstaðnum. Markmiðið var að gera bungy. Ég var beðin um nákvæmar lýsingar á því svo ég skal lýsa þessu eins vel og ég get. Við horfðum fyrst á e-ð fólk stökkva og svo fór ég inn til að bóka. Þurfti að skrifa undir eitthvað dót fyrst, lesa alla skilmála og eitthvað. Svo þurfti að vigta mig og eftir það fékk ég svona dót um hálsinn með nafni, þyngd og e-u fleiru á. Svo var bara komið að þvi. Labbaði fram á brúna, fór í gegnum eitthvað hlið og rétti fólkinu fína hálsmenið mitt (þið báðuð um nákvæmar lýsingar). Settist svo niður og þau byrjuðu að festa ‚böndin' utan um ökklana á mér og sögðu mér svo hvernig þetta gengi fyrir sig. Var hissa hvað ég var óvenjuafslöppuð allan tímann. Var ekkert hrædd eða kvíðin og bara gerði þetta haha. Kallinn spurði svo hvort ég vildi fara ofaní vatnið og auðvitað sagði ég já! Spurði svo hvað ég færi djúpt ofaní því maður á að geta valið allt frá því að fara ekkert ofaní og að því að allur líkaminn fari ofaní. Hann sagði að líklegast myndu bara puttarnir snerta vatnið. Fannst það frekar svekkjandi þar sem ég var búin að ákveða að fara alveg upp að mitti. Það stóð samt í ‚samningnum' sem ég skrifaði undir að þau gætu ekki alltaf ábyrgst það að maður gæti snert vatnið svo ég hélt að það væri ástæðan.
Eftir að þau voru búin að festa teygjuna við ökklana á mér stóð ég upp og labbaði eins og mörgæs að brúninni. Brosti fyrir myndavélina, setti svo hendur upp í loft og var með beint bak eins og mér var sagt að gera. Var enn nokkuð afslöppuð en var aðeins farin að hugsa hvað í fjandanum ég væri að pæla. Sú hugsun hvarf samt fljótt því gaurinn taldi niður .. 1,2,3 - bungyyy! Og ég lét mig detta fram af. Vá vá vá, þessi tilfinning. Að vera í frjálsu falli, geta ekki stöðvað sig á meðan maður hrapar hratt niður í áttina að vatni er ææði. Allavega fannst mér það. Ég gerði mig tilbúna til að snerta vatnið en varð pínu svekkt þegar það gerðist svo aldrei. Skoppaði svo einu sinni eða tvisvar smá upp aftur og svo niður. Rólaði þarna í smá stund og snerist í endalausa hringi. Sá svo eitthvað prik koma í áttina að mér og ég var beðin um að grípa í það svo það væri hægt að toga mig niður í bát. Ég var svo ringluð eftir alla snúningana að ég sá varla prikið og veifaði bara eitthvað út í loftið haha. Náði svo loksins taki á því og var toguð niður.
Fann ekki mikið fyrir neinu adrenalíni eftirá en þetta var samt gaman! Frjálsa fallið var æði. Ekkert smá gaman hah.
Á meðan ég labbaði til baka komst ég að því af hverju þau höfðu bannað mér að gera þetta berfætt. Ég er vön að labba um berfætt en leiðin upp var öll útí hvössum steinum og trjágreinum og fáránlega brött! Var fegin að ég hoppaði í jandals. Haha að labba til baka var án efa erfiðara en að hoppa niður og útskýrði af hverju maður þurfti að vera í sæmilegu líkamlegu formi til að mega hoppa haha.
Horfði svo á dvd af hoppinu mínu og komst þá að því af hverju ég hafði ekki farið ofaní vatnið. Gaurinn hafði víst spurt mig hvort ég vildi sleppa því að fara ofaní og ég sagði já við því! Hann sneri í hina áttina þegar hann spurði og það var tónlist í gangi svo ég heyrði ekki alla setninguna. Mjög svekkjandi eeen ég komst yfir það. Er núna harðákveðin í því að gera hærra stökk og langar ekkert lítið að gear 134 metra stökkið í Queenstown. Fæ tækifæri til þess þegar ég fer í South Island Trip í apríl og ég er nokkuð ákveðin í að grípa það tækifæri.

Áður en ég hoppaði

Beint eftir að ég hoppaði

Ooog að hrapa niður
Seinna um daginn tók ég svo eitt af hjólunum sem við höfðum þarna og hjólaði meðfram vatninu. Það er of fallegt þarna og ég eelskaði Taupo. Saknaði þess ekkert smá að hjóla. Var vön að hjóla mikið heima en hafði svo ekkert hjólað í næstum hálft ár. Svo var frábært veður og þetta var bara æði.
Aðfangadagur var svo vægast sagt skrýtinn. Hostforeldrar mínir fóru út til að kaupa það sem þurfti í jólahádegismatinn sem var daginn eftir. Ég var bara ein eftir í húsinu. Það var steikjandi hiti og glampandi sól svo við vorum vægast sagt heppin með veður um jólin. Held að dagarnir yfir jólin hafi verið heitustu dagar sumarsins. Allavega þá fattaði ég eftir smá að ég var ekki með lykil að húsinu og gat því ekkert farið út því ég gæti ekki komist inn aftur. Aðfangadagur fór hins vegar aðallega í að hanga inni meðan það var sól og úti, horfa á ástralskan fótbolta, senda sms og horfa á Friends haha. Eftir um 4 eða 5 klst ákvað ég bara að fara út og vera bara læst úti þangað til þau kæmu til baka haha. Fór bara í smá göngutúr um bæinn sem var mjög fínt. Komst svo aftur inní húsið um 2 klst seinna. Eftir kvöldmat fékk ég svo tvo pakka frá hostforeldrum mínum því þau vildu hafa eitthvað eins og það er á Íslandi. Fékk myndaramma :)

Lake Taupo og e-ð
Svo kom jóladagur! Eins og þið vitið örugglega þá halda þau uppá jólin á jóladag en ekki aðfangadag. Fékk einhverja pakka um morguninn, svo pökkuðum við niður og keyrðum af stað. Eftir stutt stopp í Rotorua keyrðum við til Tauranga til afans. Restin af fjölskyldunni mætti þangað líka og við borðuðum hádegismat og fengum fleiri gjafir. Fékk ekkert smá mikið af random smádóti frá hostfjölskyldunni minni haha, þar á meðal skopparabolta og mörgæs sem kúkar. Ég og Michelle eyddum svo smá tíma í að púsla bara því allir hinir fóru að sofa eftir matinn hah. Svo lögðum við í hann aftur, næsta stopp var Hamilton. Fjölskylda hostpabba míns býr þar. Mættum þar í pylsur og hamborgara. Svo spiluðum við stelpurnar badminton.. úti. Ekki oft sem það gerist á jóladag haha! Fórum svo í Twister og pílukast og þegar það fór að kólna fórum við bara inn að spila og í singstar. Mjöög öðruvísi jóladagur og þetta var bara frekar gaman!
Það var ekki fyrr en við vorum að keyra heim sem mér fannst vera eitthvað jólalegt. Það var dimmt og kalt í bílnum, vorum með teppi og settum jólalög í gang. Miklu jólalegra en að spila badminton í stuttbuxum og hlírabol hah. Við ætluðum að opna pakkana þegar við komum heim en allir voru svo þreyttir svo við ákváðum að opna þá morguninn eftir í staðinn.
Ég var ekkert smá ánægð með gjafirnar sem ég fékk frá Íslandi! Takk allir, þetta var frábært :)

Twister á jóladag
Hostsystir mín keypti svo rockband leikinn fyrir playstation 2. Næstu dagar fóru semsagt bara í að spila Rockband!
Á mánudeginum fór ég svo að kveðja Ryan frá USA. Þaaað var ekki auðvelt, fannst ég vera búin að kveðja nógu marga hah.
Dagarnir fram að áramótum fóru bara í rockband, versla og e-ð.
Um áramótin var svo áramótapartý hjá Dylan sem er vinur Michelle. Mjög fínt bara, fórum í heita pottinn þar og svona. Fannst samt ekkert vera áramót því það var ekkert áramótaskaup, næstum engir flugeldar og bara þrjár innisprengjur á mann haha! Ég skemmti mér samt bara mjög vel. Á miðnætti fórum við svo út til að geta fyglst með flugeldasýningunni úr SkyTower. Komst ekki nálægt því að vera eins og íslensk áramót enda þarf mikið til þess! Þetta var mjög flott sýning samt, og ekki leiðinlegt að vera með þeim fyrstu í heiminum til að fá 2010!
Fórum svo bara heim eftir það og ég fór að sofa rétt eftir eitt. Er ekki frá því að ég hafi aldrei farið svona snemma að sofa á áramótunum! Þurftum samt að vakna snemma til að fara til Tauranga. Hostmamma mín átti nefnilega afmæli og hún hélt uppá það í þar. Klukkan eitt eftir hádegi hringdi pabbi svo í mig því þá var miðnætti á Íslandi! Fékk að heyra í flugeldum haha. Fannst ekkert smá gott að tala við alla heima aftur :)
Aaallavega, eftir veisluna fórum ég, Michelle, kærastinn hennar, Kaela og hennar kærasti í smábíltúr um Tauranga. Fórum í e-n park bara, mjög næs. Um kvöldið fór ég svo með sama fólki yfir til Mount Manganui. Horfðum á tunglið koma upp, ekkert smááá flott! Og ég skildi myndavélina eftir í bílnum. Þetta var allavega æði.
Keyrðum svo heim daginn eftir. Við fimm fórum í einum bíl og hostforeldar mínir í öðrum bíl. Fórum lengri leiðina heim hah. Stoppuðum fyrst í Mt Manganui aftur og fórum á ströndina þar. Æææðisleg strönd! Næsta stopp var Waihe bara til að geta sagst hafa komið þangað og fórum svo til Paeora. L&P, nýsjálenskur gosdrykkur sem ég eeelska kemur þaðan haha. Það eru tvær risastórar L&P flöskur þarna í bænum. Viðórum auðvitað og tókum myndir með flöskunum hah. Keyrðum svo bara heim með einu ísstoppi. Mjög skemmtileg heimferð verð ég að segja eftir góða daga í Tauranga :)

Ég og hostsystur mínar í Mt Manganui. Vorum ekki með sundföt og stoppuðum bara í smá stund þarna :)

Ströndin

Hjá nýju flöskunni haha

Nick, ég og Reece hjá gömlu flöskunni
Svooo þurfti ég að kveðja fleiri! 3. janúar fór ég með Philipp og Elju á flugvöllin til að kveðja Ryan - aftur. Fórum svo heim til Philipps í kveðjuhádegismat því hann var að fara heim daginn eftir. Fórum í bíó á Avatar - aftur! Ótrúlega skrýtið að þetta hafi verið í síðasta skipti sem við öll héngum saman eeen svona er þetta!
Daginn eftir fór ég svo á flugvöllinn til að kveðja Philipp. Vorum þar alveg þangað til hann var farinn í gegn og ég verð að segja að þetta var mjög skrýtið. Fór bara að hugsa um það þegar ég þarf að fara heim! Ég á enn nokkra mánuði eftir samt svo ég reyndi að pæla ekki of mikið í því.
Á laugardeginum var svo glampandi sól og steikjandi hiti. Það voru tónleikar á Piha beach sem mig langaði ekkert smá að fara á eeen neib, ég fór að selja pylsur í staðinn! Pínu svekkjandi fyrst en það var brjálað að gera og við enduðum á að standa þarna í næstum 6 klst að selja! Svo ég fékk 6 community service hours fyrir þetta! Ekki leiðinlegt. Er næstum komin með allar stundirnar sem ég þarf.
Á sunnudeginum fór ég svo í útilegu. Kom bara heim úr þeirri útilegu á föstudaginn.
Ætla að reyna að blogga oftar og styttra héðan í frá. Held ég fari of mikið í smáatriði haha.
Núna á þriðjudaginn fer ég aftur til christchurch í viku. Þegar ég kem til baka kemur blogg um útileguna og Chch. Ég lofa að það komi ekki fáránlega seint eins og þetta.
Allavega er þetta allt í bili. Ég heimta comment! Sama hvort ég þekki ykkur eða ekki, plíís commentið! Bara skrifa nafn og ‚ég las'. Þarf ekkert meira hah, vil bara vita hver er að lesa.
Eitt langt til ađ bćta upp biđina
Hér er hitt bloggið sem ég lofaði. Aðeins seinna en ég ætlaði að posta því en það er því ég hef verið svo ótrúlega upptekin síðustu vikurnar. Það þýðir samt bara að ég hef frá meiru að segja núna.
Meðan ég var í Christchurch punktaði ég niður hjá mér hvað við gerðum á hverjum degi en svo steingleymdi ég því eftir að við komum til baka. Ég man þess vegna ekkert hvað við gerðum alla dagana í Auckland en ég skal reyna..
Allavega fyrir löngu síðan, eða fimmtudaginn 26. nóvember flugum við Guðmunda til baka frá Christchuch og til Auckland. Stuttu eftir miðnætti sótti hostpabbi minn okkur svo á flugvöllinn. Á föstudeginum hittum við svo Elju frá Belgíu, Moritz frá Þýskalandi og einhvern þýskan vin Moritz í Sylvia Park sem er víst með stærstu verslunarmiðstöðvum Auckland held ég. Þetta var meira að segja í fyrsta skipti sem Guðmunda tók lest hér í NZ og hún fékk að taka tvær. Flott það! Við röltum bara um mallið og svona. Þar var komið risastórt jólatré og hreindýr sem passar bara alls ekkert inn hérna haha. Við Guðmunda höfðum ákveðið daginn áður að fá okkur aldrei McDonald's meðan við værum báðar í Auckland. Að sjálfsögðu brutum við það strax og fórum á McDonald's fyrsta daginn okkar. Vil samt taka það fram að við fengum okkur alltaf chicken wraps en ekki hamborgara svo við erum ekki alveg eins feitar og þið haldið. Um kvöldið sáum við svo New Moon sem mér fannst bara nokkuð góð! Okkur tókst að villast í bíóinu eftir myndina, tókum vitlausan rúllustiga og enduðum á stað þar sem var enginn stigi niður - bara lyfta sem við fundum eftir smá leit. Flott það.
Á laugardeginum fórum við svo með Kaelu, hostsystur minni, í e-ð svona skyndihjálparpróf. Við vorum samt ekki að taka prófið heldur áttum við að vera sjúklingar. Fengum svona gervisár í framan og áttum að þykjast hafa lent í flugslysi. Ég var bara með sár í framan og svona og það var ekkert meira að mér en það þurfti að bera Guðmundu á börum og e-ð, frekar spes en mjög gaman bara .. og frír matur. Fengum líka community service hours fyrir þetta.. score! Man ekkert hvað við gerðum meira þann daginn. Giska á að við höfum keypt okkur kók og snickers eða moro gold og horft á Friends. Gerðum það ekkert ósjáldan haha.

Á sunnudeginum var svo Santa Parade! Það er basically risastór jólaskrúðganga sem fer niður aðalverslunargötuna í Auckland. Að horfa á skrúðgönguna var ekki alveg nóg heldur tókum við þátt í henni! Allt til að fá community servce hours fyrir AFS. Hittum fullt af skiptinemum úr Auckland, bæði fólk sem kom í janúar og í júlí. Ég hitti þess vegna aftur krakka frá Gateway Camp sem var mjög gaman. Aaaallavega eftir smá bið komumst við í búningsherbergin og skelltum okkur í trúðabúningana. Já - við vorum sko black&white clowns. Löbbuðum þarna niður Queen Street í trúðabúningum með blöðrur og veifuðum til krakkanna. Held reyndar að klappstýrurnar fyrir framan okkur hafi fengið alla athyglina en það voru nokkrir krakkar sem veifuðu til baka. Fullt af fólki mætt þarna til að fylgjast með. Eftirá skelltum við okkur svo á Subway, ennþá með málninguna framan í okkur. Fengum vægast sagt mikla athygli þegar við löbbuðum svo í gegnum mallið á leiðinni heim haha. Horfðum svo á Jólaósk Önnu Bellu um kvöldið ef ég man rétt og ég fékk staðfestingu á því að ég kann þessa mynd nokkuð vel utanað. Freak? Já.

Trúðar og fleira afs fólk
Mig minnir að mánudagurinn hafi bara verið rólegur. Held við höfum hitt Elju í mallinu og bara e-ð chillað með henni. Frekar óþægilegt að muna ekki eitthvað svona haha. Ég giska á að við horfðum á Friends um kvöldið.
Þriðjudagurinn var líka frekar rólegur. Fórum á Queen Street og löbbuðum bara þar um og kíktum í búðir. Fórum svo í bíó á Invention of Lying sem var baraaa allt í lagi. Okkur tókst aftur að villast í bíóinu á nákvæmlega sama stað og áður. Smá vandræðalegt.
Svooo kom miðvikudagur. Þá skelltum við okkur í klifur með fleiri AFSurum. Það var ekkert smá gaman. Gátum reyndar ekki fundið staðinn fyrst svo Elja stakk uppá því að spyrja á bensínstöðinni. Enginn hafði hugmynd um hvar þetta væri haha. Fékk svo sms frá Philipp um að hann hafi fundið þetta og núna gerir hann ennþá grín að okkur útaf því við fórum að spyrja til vegar. Allavega klifruðum við alveg slatta, borðuðum svo hádegismat í strætóskýli eins og heimilislaust fólk haha.
Man ekkert hvað við gerðum svo um kvöldið.

Hah góð leið. Guðmunda að klifra.

Ooog ég
Á fimmtudaginn skelltum við okkur í eina skemmtigarðinn í Auckland - Rainbow's End! Ekki nóg með það heldur fórum við með skólahóp. Hostmamma mín er kennari eins og þið vitið kannski og hún var að fara með hóp af krökkum úr Year 10 (eins og 9. bekkur á Íslandi) í þennan garð. Við ákváðum bara að fara með þeim til að fá ódýrara inn. Þegar við komum svo á staðinn voru fullt af öðrum skólahópum þarna líka sem þýddi endalaust langar raðir. Komumst samt í öll tækin og þessi garður var reyndar ekkert svo góður haha. Kannski 2 góð tæki en ég fékk þó að fara í rússíbana hah þó hann hafi verið lítill. Myndi aldrei borga fullt verð þarna inn. Eeen við skemmtum okkur samt bara nokkuð vel þó að Guðmunda hafi oft verið nálægt því að myrða börnin þarna. Góður dagur engu að síður.
Á föstudeginum fórum við smá í annað mall og svo heim að pakka fyrir midstay camp! Fáránlegt að midstay camp sé búið, tíminn hér líður svo ótrúlega hratt og ég er ekki alveg nógu sátt við það. Verð komin aftur til Íslands áður en ég veit af!
Allavega þá sóttum við alla hina krakkana í Waitakere Chapter á svona lítilli rútu og lögðum í hann til Muriwai sem er strönd á vesturströndinni. Komumst reyndar að því að það voru ekki nógu mörg sæti í rútunni svo tveir þurftu að sitja á gólfinu. Það var alveg greeenjandi rigning þennan dag þannig ég bjóst ekki við því að við gætum gert mikið þessa helgi. Þetta camp var semsagt midstay camp fyrir okkur sem komum í júlí og svo end of stay camp fyrir þá sem komu í janúar. Það var ekkert smá gaman að hitta alla aftur og svo kynntist ég fullt af nýju fólki líka.
Fórum í einhverja leiki um kvöldið. Einn þar sem maður var með miða á enninu og átti að giska hvað maður var og annan þar sem átti að veiða lauka með munninum og svo e-ð fleira. Um kvöldið var svo bara spjall og svo fórum við í leik þar sem alltaf ein manneskja deyr í hverri umferð. Það er regla á bakvið það og tilgangurinn er að finna regluna Við vorum bara tvö sem vissum þessa reglu haha, frekar gaman að sjá hvað aðrir verða pirraðir. Spiluðum þennan leik frekar oft þessa helgi minnir mig en samt náðu ekki allir að fatta regluna. Sumir, TIL DÆMIS GUÐMUNDA, enduðu á að googla regluna þegar við komum heim.

Stólaleikurinn klikkar seint.
Daginn eftir var svo glampandi sól og hiti! Var mjög ánægð með það hah. Fyrir hádegi var smá orientation. Frekar vandræðalegt því að enginn í mínum hóp nennti að tala um hlutina svo það var bara vandræðaleg þögn mestallan tímann. Um kl 2 löbbuðum við svo niður á strönd! Ég, Elja og Guðmunda vorum hins vegar frekar seinar og misstum af hópnum. Ætluðum að stytta okkur leið í gegnum bush eins og hinir gerðu en við villtumst, fórum til baka og löbbuðum niður veginn. Komum svo loksins að ströndinni. Gátum valið að fara til hægri eða vinstri og við völdum hægri sem við hefðum ekki átt að gera! Sáum hópinn hvergi. Héldum svo loksins að við sæjum þau alveg á endanum á ströndinni og löbbuðum alla leið þangað. Það kom hins vegar í ljós að það sem við héldum að væri hópur af fólki var bara hestur, steinn og bátur. Frábært! Löbbuðum alla leið til baka og fundum svo loksins hópinn þar sem þau voru að taka hópmynd. Ég held við séum bara inná þremur hópmyndum haha. Skoðuðum einhverja fugla og fórum svo niður á strönd að synda. Það var bara mjög gaman, stórar öldur og svona.

Elja og Guðmunda smá villtar haha

Allur hópurinn eftir að við fundum þau loksins.

Ströndin. Það var smá skýjað.

Íslensku stelpurnar á camp :) Ég, GUðmunda, Laufey og Hanna.
Eftir það fór svo hluti af hópnum aftur til baka en hinn hlutinn fór að litlu vatni þarna rétt hjá. Syntum í vatninu og svona sem var æði, fyrir utan plönturnar í botninum, og löbbuðum svo til baka. Þurftum að fara í gegnum svona bush/skóg og ég var bara í jandals (sem eru btw flip flops!). Þeir voru allir útí drullu þannig ég labbaði berfætt þarna í gegn og fékk í staðinn nokkur bit og rispur á fæturna. Eftir að hafa synt í vatninu var hlírabolurinn minn blautur svo ég fór í stuttermabol. Bara á leiðinni til baka á campið brann ég bæði aftaná hálsinum og á höndunum og fékk svona líka flott stuttermabolafar! Ekki vinsælt haha. Komumst svo loksins til baka og komumst í sturtu. Heita vatnið var samt allt búið þannig við þurftum að sætta okkur við ískaldar sturtur! Um kvöldið var svo hæfileikakeppni sem var mun skárri en keppnin á gateway camp haha. Margt þarna mjög flott. Fengum svo árbækurnar okkar og kvöldið fór aðallega í að skrifa í bækur hjá öðrum og skrifa á fána hjá fólkinu sem er að fara heim. Vöktum svo frekar lengi og spiluðum mafia haha. Mjög skemmtilegur leikur finnst mér. Sofnuðum svo að verða 5 og vöknuðum aftur um 8!

Synda í vatninu

Smá bruni. Engar áhyggjur samt, þetta dofnaði fljótt.

Spila Mafia.

Laufey kom með íslenskan lakkrís!

Hah horfa á stjörnurnar.
Sunnudagurinn byrjaði með smá orientation og svo var bara spjall og gaman í sólinni og hitanum. Við ætluðum að stafa AFS með því að leggjast í grasið. Einhver fékk svo hugmynd um að gera svoleiðis risastór með öllum á campinu. Við gerðum það og það kom bara óótrúlega vel út, ekkert smá ánægð með það haha.

Sátum þarna frekar oft að spjalla og svona.

AFS Waitakere.

Beeeeest
Eftir mat var svo „crybaby time". Fórum í hring og ein manneskjan byrjaði að knúsa manneskjuna vinstra megin við sig og labbaði svo allan hringinn og knúsaði alla. Næsta manneskja fór af stað beint á eftir henni og þannig koll af kolli þannig allir enduðu á að knúsa alla. Margir af þeim sem eru að fara heim í janúar voru hágrátandi og það var ekkert smá skrýtið að kveðja. Fullt af fólki þarna sem ég var bara nýbúin að kynnast og mun svo kannski aldrei sjá aftur. Mig fór að kvíða fyrir mínu end of stay camp sem verður alltof fljótlega ef tíminn heldur áfram að líða svo hratt.

Elska þessa mynd
Reyndar er ég búin að ákveða að það verður ekkert end of stay camp fyrir mig. Ég ætla ekki heim. Langar það engan veginn og ætla bara að vera hér áfram haha. Ég virkilega elska þetta land og þó að allt hafi ekki byrjað of vel þegar ég kom hingað, og margt gæti enn verið mun betra þá er þetta samt æðislegt. Finnst ég alveg eiga heima hérna og ætla að nýta næstu 6 mánuði eða svo eins vel og ég get og bara gera gott úr því sem ég hef.
Væmiðvæmið.
Aaaallavega þá fór Guðmunda, öðru nafni GumGum heim daginn eftir. Sá dagur var bara rólegur og mig minnir að þriðjudagurinn hafi bara farið í leti líka.
Á miðvikudaginn skellti ég mér svo í klifur, annan miðvikudaginn í röð. Það var steikjandi hiti og sól en við vorum samt inni að klifra. Fleira fólk kom í þetta skiptið, þar á meðal Lasse frá Grænlandi sem býr í Taupo. Komst að því að spurningarnar sem hann fær um Grænland eru mjög svipaðar og þær sem ég fæ um Ísland. Gott að vita að ég er ekki ein haha. Eftir klifur fórum svo ég, Ryan frá USA, Philipp frá Þýskalandi, Juaquin frá Argentínu og Lasse frá Grænlandi í bíó á Zombieland. Mjög fyndin ef þú spyrð mig. Á engar myndir frá þessum degi.
Daginn eftir fórum við svo á ströndina, Takapuna Beach til að vera nákvæmari. Fór aftur með sama fólkinu nema Lasse kom ekki og svo kom Chris frá Peru með okkur líka. Eins og þið takið kannski eftir þá hékk ég mikið með öðrum skiptinemum þessa daga. Það er aðallega því að eftir campið ákváðum við að reyna að hanga meira saman og halda sambandi svona áður en allir fara heim.
Allavega var geðveikt veður fyrir ströndina, syntum í sjónum og svona. Lágum í sólbaði mestallan tímann sem er ekki það besta sem maður gerir hér á Nýja-Sjálandi! Það er nefnilega gat í ósonlaginu hér þannig það tekur enga stund að brenna. Ég var augljóslega ekki með nógu sterka sólarvörn því ég brann frá hálsi og niður að bikiníbuxum og svo smá á leggjunum... bara framaná! Ég var semsagt eins og rautt homeblest, með skjannahvítt bikinífar. Tók engar myndir þennan dag samt því ég vildi ekki fá sand í myndavélina hah.
Þið sem eruð heima á Íslandi og eruð að hugsa „Váá heppin, þetta verður brúnt!" skulið hætta því núna haha því ég get sagt ykkur að það er ekkert gaman að brenna á svona stóru svæði. Það er samt allt í lagi með mig núna. Þetta var ekki slæmur bruni sem betur fer og jújú, ég fékk smá lit eftir þetta haha.
Föstudagurinn fór bara í rólegheit og aloe vera. Samt aðallega aloe vera.
Á laugardeginum var svo Christmas in the Park! Það eru bara opnir jólatónleikar í Auckland og vanalega mæta um 200 - 300.000 manns þangað samkvæmt hostforeldrum mínum. Aftur fór ég með öðrum skiptinemum og það voru allt krakkar sem eru að fara heim í janúar fyrir utan einn strák sem var bara í heimsókn frá Tauranga. Við vorum komin niður í bæ frekar snemma þannig við ákváðum að fara á Auckland Museum. Á leiðinni þangað var mikið treyst á GPS tækin sem Juaquin frá Argentinu og Karen frá Paraguay voru með. Við komumst að því að þessi tæki sýna ekkert alltaf stystu leiðina haha. Mér finnst söfn vanalega leiðinleg en þetta var bara frekar töff, allskonar dót þarna. Fórum meðal annars í herbergi sem á að sýna hvernig það er að vera inni húsi þegar eldgos á sér stað, sáum alskonar skordýr (sem voru sem betur fer dauð) og fullt fleira. Svo var sér hluti fyrir seinni heimsstyrjöldina og margt þar var mjög flott. Fórum svo og fundum okkur stað í ‚garðinum' og biðum þar þar til tónleikarnir byrjuðu. Þetta var ekkert smá flott. Tónleikarnir hefðu getað verið betri samt en við spjölluðum bara og svona og þetta var bara mjög gaman. Hellingur af fólki þarna. Pöntuðum okkur pizzu sem Philipp og Juaquin fóru að sækja með hjálp GPS tækisins og auðvitað tók það einhvern klukkutíma haha. Showið endaði svo með flugeldasýningu. Meðan við biðum eftir að vera sótt brotnaði glowstick-inn minn (eða hvernig sem maður íslenskar þetta orð). Regnjakkinn minn og bakpokinn minn lýstu þess vegna í myrkri í nokkra klukkutíma. Vel gert.

Fólk hah, tekið frekar löngu áður en allt byrjaði svo það kom miklu fleira fólk en þetta.
Frekar lítil mynd haha. Vantar nokkra samt.

Frekar töff, það komu flugeldar uppúr kókflöskunni.
Á sunnudagskvöldið var svo síðasti Waitakere chapter meeting ársins. Í þetta skiptið skelltum við okkur í lautarferð haha í svona almenningsgarð. Frekar kósí bara. Krakkarnir sem fara heim í janúar áttu að gefa hostforeldrum sínum plöntu og segja eitthvað fallegt við þau og svo fengu þau viðurkenningar. Ótrúlega sorglegt að þetta hafi verið síðasti fundurinn okkar með krökkunum sem komu fyrir ári síðan. Hef ekki séð flest þeirra aftur eftir þennan fund og mun líklegast ekkert sjá þau áður en þau fara heim.


Þeir sem eru að fara heim, mínus tveir.
Á mánudeginum var svo önnur strandarferð, í þetta skiptið til Mission Bay sem er lika hvít strönd. Það eru bara tvær strandir hér sem ég get tekið strætó til - Mission Bay og Takapuna. Aftur fór ég með öðrum skiptinemum, í þetta skiptið var það Philipp, Ryan, Gabe frá USA og tvær kiwi vinkonur hans, Mike frá Belgíu sem var í heimsókn frá Tauranga og svo komu Karen frá Paraguay og Andreas frá Danmörku aðeins seinna. Jebb gaman að því. Fórum niður á strönd eftir að hafa fengið okkur ótrúlega dýran ís. Philipp hendir mér alltaf útí sjó en þar sem ég var ekki með föt til skiptana í þetta skiptið þá fékk hann hina til að hjálpa sér að skvetta á mig sjó í staðinn. Fórum svo bara í fleiri svona leiki þar sem á að giska á regluna hah, margir mjög pirraðir þar.
Fundum svo pizza stað niðrí miðbæ sem er svipaður og subway nema bara með pizzu! Hah ekkert smá gott. Gleymdi alltaf að segja að pizzurnar hér eru svo allt öðruvísi en heima. Það er engin pizzusósa, heldur bara osturinn beint ofaná pizzabotninn og svo er sósan stundum sett ofaná pizzuna þegar hún er tilbúin. Aftur engar myndir.
Svo kom miðvikudagur. Eins og alla hina daga vikunnar þá var ég upptekin haha. Við AFSararnir skelltum okkur á skauta! Reyndar kom einn nýsjálendingur með okkur líka. Við þurftum reyndar að kenna honum og strák frá Chile að skauta hah því þeir kunnu það ekki fyrir. Allavega var æðislegt að komast aftur á skauta eftir svona langan tíma. Ég komst líka loksins í jólaskap!! Hér í sólinni (og rigningunni) hefur ekkert verið jólalegt en þarna var bæði kalt og jólalög í gangi. Það varð svo enn jólalegra þegar einhver skrapaði snjó af svellinu og setti inná mig haha. Þetta var æði.
Ég, Elja, Philipp og Ryan löbbuðum svo laaanga leið heim til Philipps og Elju (þau eru hostsystkini btw því Elja þurfti að flytja frá Piha.) Horfðum þar á myndir og grilluðum. Fengum svo þýskt heit kakó haha. Þetta var ekkert smá kósí og ég gisti svo hjá Elju. Daginn eftir ætlaði hún að fara að kaupa sér nýja myndavél en komst þá að því að veskið hennar, kortið hennar og nemendaskírtenið var allt týnt! Fundum það hvergi í húsinu og löbbuðum alla leið til baka til að leita. Spurðum alstaðar en fundum ekkert og það er ekki enn fundið. Svekkjandi.

Eeekki góð mynd, vildi bara hafa einhverja mynd frá því þegar við fórum á skauta haha.
Seinni partinn á föstudaginn skutlaði svo hostpabbi mér á mótorhjólinu til Takapuna beach. Hitti þar Ryan & einhverja því Ryan fer bráðum heim og við ætluðum að kveðja hann. Náðum svo ekkert að kveðjast því við misstum næstum af strætó og eitthvað þannig við verðum að finna annan tíma til þess. Frábært.
Á laugardeginum fór ég í bíó á Avatar sem er btw mjööög góð. Um kvöldið var svo e-ð afmælispartý. Það var frekar leiðinlegt svo við ákváðum nokkur að fara á Wendy's. Þurftum reyndar að fara á KFC í staðinn þvi Wendy's var lokað og þau leyfðu okkur ekki að labba í gegnum bílaafgreiðsluna. Fannst það frekar asnalegt haha.
Svooo kom sunnudagur og þá keyrði ég til Taupo sem er við stærsta stöðuvatn landsins, á miðri Norðureyjunni. Var þar fram á föstudag, eða jóladag. Rétt eftir áramót kemur semsagt blogg um þá viku og um jólin og áramótin. Þetta er orðið frekar langt og ég ætla ekki að hafa það mikið lengra. Kíkið aftur stuttu eftir áramót.
Gleðileg jól.
-Þóra Margrét
Chrrrrristchurch!
Hér kemur þetta!

Svona svo þið sjáið hvar ég var.
Þriðjudaginn 17. nóvember vaknaði ég um 4:30 til að ná flugi klukkan 6:40. Lenti svo í Christchurch um 8 og þar var Guðmunda mætt ásamt hostmömmu sinni til að sækja mig á flugvöllinn. Það var ekkert lítið skrýtið að tala íslensku aftur! Var alveg í rugli fyrst og fannst röddin mín hljóma svo asnalega.
Allavega vorum við bara túristar þennan dag. Fórum niður í miðbæ og röltum bara um þar. Kíktum í einhverjar búðir og svona og fórum svo á McDonald's. Auðvitað.
Eftir það fórum við upp í kirkjuturn þar sem maður gat séð yfir borgina. Mjög flott sko! Guðmundu tókst líka að detta svona meistaralega niður tvær tröppur. Held að það gleymist seint haha. Til að fá kúlið til baka fórum við svo og redduðum henni aðeins of svölum bleikum sólgleraugum og ég keypti mér fjólublá í stíl. Þessi gleraugu voru mikið notuð í þessari ferð. Tókum svo strætó á ströndina og keyptum okkur ís eins og sannir AFSarar. Allavega var svo spa night um kvöldið. Nokkrir skiptinemavinir Guðmundu komu til okkar og við fórum í heita pottinn og svona. Mjög gaman! Reyndum svo að horfa á einn Glee þátt um kvöldið en ég sofnaði.

Gumgum & McDonald's! Ekki eigið þið svona mynd haaa?

Eitthvað sem fæst ekki á Íslandi.

AFS = Another Fat Student

Spa night
Á miðvikudeginum sváfum við svo út. Sam, vinur Guðmundu, sótti okkur um 1:30 og við fórum í eitthvað risa outlet til að versla. Keypti mér samt ekkert nema Subway. Smá fail.
Eyddum svo deginum bara í chill og tölvu haha. Fórum svo í bíó um kvöldið á My Sister's Keeper. Mæli með henni! Ekkert smá góð fannst mér og ótrúlega sorgleg.
Áður en við fórum að sofa reyndum við svo aftur að horfa á Glee en ég sofnaði.
Á fimmtudeginum vöknuðum við aðeins seinna en planað var og tókum strætó niðrí bæ til að kaupa gervineglur haha. Fórum svo heim til að pakka fyrir Queenstown! Tókum svo strætó niðrí bæ um kvöldið, hittum þar eitthvað fólk, tókum strætó eitthvað annað og svo annan strætó niður á strönd. Það var mjög gaman bara en frekar kalt svo við keyptum okkur franskar. Ég veit ekki hvað ég hef eytt miklu í franskar eftir að ég kom hingað! Tókum svo bara strætó heim og höfðum það kósí um kvöldið. Komst í gegnum heilan Glee þátt án þess að sofna, yeah!
Allavega verð ég að segja að strætókerfið í Christchurch er svo mun betra en í Auckland. Strætóarnir eru actually á réttum tíma! Svo getur maður ýtt á takka til að sjá hvað það er langt í strætóinn sem maður er að bíða eftir. Þau eru líka með svona stóra strætóstöð í miðbænum haha. Þau eru reyndar ekki með lestar eins og hérna í Auckland.
Á föstudeginum vöknuðum við svo um 8, höfðum okkur til og lögðum svo af stað til Queenstown! Fyrir þá sem ekki vita þá er Queenstown lítill bær á Suðureyjunni, frekar langt inní landi og í um það bil 7 klst fjarlægð frá Christchurch.

Þið sjáið Queenstown þarna á kortinu.
Áttum semsagt eftir að keyra nokkuð lengi! En vávává hvað Suðureyjan er ótrúlega falleg! Tókum endalaust af myndum út um gluggann haha. Við stoppuðum svo við Lake Tekapo og borðuðum hádegismat þar. Ef það var ekki með því fallegasta sem ég hef séð þá veit ég ekki hvað.
Keyrðum svo bara meira og stoppuðum við Kawarau Bridge og horfðum á fólk gera teygjustökk. Ég gerði það samt ekki í þetta skiptið, meðal annars því þetta er fáránlega dýrt stökk miðað við mörg önnur. Komum svo loksins til Queenstown og fundum íbúðina okkar - beint fyrir ofan The British Lolly Shop. Ekkert smá flott íbúð og ææðislegt útsýni yfir Lake Wakatipu. Við löbbuðum svo bara um í góða veðrinu og skoðuðum bæinn. Fórum svo út að borða um kvöldið.
Við Guðmunda komumst svo að því að það var þakgluggi í herberginu okkar en hann var of hátt uppi til að við gætum opnað hann. Fundum svo prik sem við vorum nokkuð vissar um að ættum að nota til að opna hann. Eyddum góðum tíma í að leika okkur að veiða dót með þessu priki eins og einhverjir hálvitar haha. Svefngalsi? Já!

Fallegt sko!

Bungy!

Útsýnið úr íbúðinni okkar.

Fannst þessi frekar töff. Örugglega með uppáhaldsmyndunum mínum úr Queenstown.

Guðmunda var uppi í efri koju og veiddi skó hahaha.
Á laugardeginum vöknuðum við svo snemma og höfðum okkur til. Gerðum ekkert nema bara rölta um því það kom rigning. Um hádegið fórum við svo upp í litla rútu sem var full af gömlu fólki og keyrðum af stað að á þar sem við gátum gert jet boating! Leiðin að ánni var mjög flott, svona fjallaleið og mjög bratt niður við hliðina á bílnum. Skelltum okkur svo í bátinn ásamt öfunum og ömmunum sem voru þarna með okkur og þutum svo af stað. Ekkert smá gaman. Tókum nokkrar krappar beygjur og fórum i heila hringi og svona. Stoppðum svo á frekar flottum stað og allir fóru að taka myndir. Við Guðmunda höfðum ákveðið að taka hennar myndavél með okkur í þetta því hún er ódýrari og mætti frekar blotna haha. Ég skildi hins vegar ekkert í því af hverju vélin kveikti ekki á sér. Komst svo að því að það var ekkert batterí í henni! Guðmunda hafði gleymt batteríinu í herberginu sínu í Christchurch. Veeel gert haha! Án efa ljóskumoment dagsins. Erum semsagt ekki með neinar myndir frá bátsferðinni sjálfri. Þutum svo bara áfram og stoppuðum svo aftur á stað þar sem sena úr Lord of the Rings var tekin upp.

Vegurinn

Þar sem við tókum ekki myndavél í bátinn þá fann ég þessa bara á netinu. Þetta er eins og við fórum í.
Eftir þetta fórum við aftur upp í bílinn og keyrðum að gamalli teygjustökkbrú og sáum þar yfir gilið sem við höfðum verið í rétt áður. Mjög flott!
Versluðum svo smá eftir það og fórum svo í bátsferð á Lake Wakatipu. Í þetta skiptið var þetta stór, hægfara bátur í staðinn fyrir lítinn hraðbát og í staðinn fyrir hljóðið í mótornum og hávaðann í vindinum sem fylgdi hinni bátsferðinni var píanótónlist. Hins vegar vantaði ekki gamla fólkið! Aftur vorum við Guðmunda langyngstar um borð. Ekki það að ég hafi eitthvað á móti gömlu fólki, alls ekki haha! Okkur fannst þetta bara frekar fyndið. Þetta var allavega mjög fallegt allt. Horfðum svo á Lord of the Rings 3 um kvöldið eftir að hafa farið út að borða. Aftur sofnuðum við seint og það var mikið hlegið.

Einu sinni mátti hoppa þarna niður.

Útsýnið af brúnni.

Á hinum bátnum um kvöldið.
Á sunnudeginum tókst okkur aftur að vakna snemma og fórum í gondola. Það eru svona eins og litlir vagnar einhvern veginn sem fara upp brekku, erfitt að útskýra en þetta var ekkert ólíkt lokaðri skíðalyftu haha. Þetta var mjög töff og frekar bratt. Fengum svo geðveikt útsýni yfir Queenstown þegar við komum upp á topp! Það var æðislegt veður, sól og hlýtt. Fullt af fólki var að gera svona paragliding. Langaði ekkert lítið að prófa það en það var fáránlega dýrt eins og allt annað í Queenstown. Þar sem þetta er típískur túristabær þá er allt mjög dýrt þarna. Hins vegar er örugglega hægt að gera allt sem maður vill í þessum bæ! Ekkert smá mikið í boði. Ég allavega elskaði Queenstown.

The gondola.

Queenstown!

Paragliding!

E-r að gera bungy afturábak.
Eftir að hafa farið í The British Lolly Shop keyrðum við svo til Wanaka með einu stoppi í Arrowtown. Við Guðmunda settumst við Lake Wanaka í sólinni meðan hostmamma hennar leitaði að íbúð. Hún fann mjög flotta íbúð fyrir okkur! Skiptum svo bara um föt og skelltum okkur á kajak. Vá, vá, vá það var æææði! Máttum bara kajaka eins og við vildum á vatninu í heilan klukkutíma. Mér leið eins og ég væri í bíómynd eða eitthvað. Það var glampandi sól og logn og við kajökuðum bara um á alveg kyrru vatni. Stoppuðum svo á miðju vatninu, tókum lappirnar upp úr kajökunum og fórum í sólbað.Eftir æðislegan klukkutíma fórum við svo til baka í smá stund og reyndum svo að finna einhvern stað til að éta. Við tvær löbbuðum bara um bæinn - ég berfætt - þangað til við fundum einhverja sjoppu og keyptum okkur hamborgara (og franskar að sjálfsögðu.) Sátum svo við vatnið og borðuðum sem var æði. Held ég hafi sjaldan hlegið jafn mikið. Svo var frekar svalur leikvöllur rétt hjá með risastórri risaeðlurennibraut. Gerist ekki flottara!
Kvöldið fór svo bara í chill og sjónvarp. Þetta var æðislegur dagur og mikið hlegið. Man ekki öll gullkornin en Guðmunda átti án efa ljóskumoment dagsins annan daginn í röð. Þegar við vorum á kajökunum var ég að tala um það að mig langaði til að hoppa út í vatnið af bryggjunni. Hún varð þá mjög hissa á svipinn og sagði svo „En Þóra, vatnið er svo blautt!" Hún segir mér að hún ætlaði að segja ‚kalt' en ekki ‚blautt' en ég veit nú ekki hvort ég trúi því.

Of svöl með bæði sólgleraugun!

Guðmunda við Lake Wanaka.

Komnar til baka.

Ég fann götuna mína!

Þegar við borðuðum við vatnið.

Sami fuglinn kom alltaf aftur og aftur. Kölluðum hann Sjú.

Ég og risaeðlurennibrautin haha!
Eins og gengur og gerist þá kom mánudagur á eftir sunnudeginum. Sá dagur fór hins vegar bara í að keyra heim. Stoppðum í frekar dauðum bæ sem heitir Twizel. Sáum eiginlega ekkert fólk þar en það var tónlist spiluð í hátölurum úti haha. Það er eitthvað nýtt. Restin af deginum fór svo bara í leti og þreytu. Horfðum bara á myndir og svo að sofa.
Á þriðjudeginum vöknuðum við seinna en áætlað var - eins og alltaf. Fórum í eitthvað mall og hittum þar Anais frá Belgíu. Eins og alltaf tókum við strætó og að sjálfsögðu fengum við okkur McDonald's eins og alltaf. Við Guðmunda vorum ekkert lítið hissa þegar við heyrðum Jungle Drum spilað inni í einni búðinni! Íslenskt lag í gangi á Nýja-Sjálandi gott fólk. Reyndar frekar frægt lag en okkur fannst þetta samt magnað. Fórum svo í heita pottinn um kvöldið, horfðum svo á mynd og eitthvað.
Ég hef ekki hugmynd um af hverju en við fórum svo að rifja upp íslenskar auglýsingar og bíómyndir og ég komst að þvi að ég kann nokkur atriði úr Jólaósk Önnu Bellu bara nokkuð vel utanað! Ég kenni svefnleysi & svefngalsa um.
Á miðvikudeginum vöknuðum við svo að sjálfsögðu seint. Það var steikjandi hiti og sól! Þennan dag kenndum við frönskum skiptinema að taka strætó því hann kunni ekki enn á strætókerfið eftir 4 mánuði. Tókum svo strætó niður á strönd og sátum þar í smá stund að spjalla. Um kvöldið kom svo Margaret, vinkona Guðmundu til okkar og við fórum í heita pottinn. Það væri hins vegar ekkert merkilegt ef Guðmundu hefði ekki tekist að missa símann sinn ofan í! Engar áhyggjur samt, ótrúlegt en satt þá virkar síminn ennþá. Held þetta sé þriðji síminn hennar hér í NZ.

Veit ég minntist ekkert á þetta en það var ógeðsleg kónguló inná klósettinu haha. Hún var loðin! Við pissuðum ekkert þetta kvöld.
Svooo kom fimmtudagur - síðasti dagurinn minn á Suðureyjunni í bili! Til tilbreytingar tókst okkur að vakna snemma. Ekki til tilbreytingar tókum við svo tvo strætóa til að fara með eitthvað bréf og svo annan strætó niðrí bæ. Fengum okkur svo McDonald's og ákváðum að það væri í síðasta skipti sem við fengum okkur það í bili. Við röltum svo bara um, fórum í mallið og svo heim að pakka. Fórum út að borða á pizzastað með hostfjölskyldunni hennar sem var ótrúlega gott. Bjuggum svo til bragðaref þegar við komum heim! Jarðarber, þristar og snickers. Váá hvað það var gott, aðeins of langt síðan ég fékk bragðaref og þetta heppnaðist bara nokkuð vel hjá okkur! Vesturbæjarís hvað?

Svooo gott!
Svo var kominn tími til að fara. Ég naglalakkaði á mér táneglurnar fyrst og Guðmunda fékk þá fáránlegu hugmynd að hafa blátt á vinstri fæti og fjólublátt á hægri. Þar sem ég fór í jandals í flugið var þetta ekkert lítið áberandi haha! Lentum svo í Auckland rétt eftir miðnætti eftir fínt flug.
Þetta voru alveg æðislegir 10 dagar! Fengum geðveikt veður mestallan tímann og það var mikið hlegið. Suðureyjan er æði finnst mér þó það hafi líka verið mjög gott að koma til baka til Auckland.
Taaakkk kærlega Guðmunda fyrir mig! <3
Endilega commentið takk. Svo kemur nýtt blogg mjög fljótlega um hina 10 dagana í Auckland. Gerðum alveg slatta þar líka, þar á meðal midstay/end of stay camp. Stefni að því að henda því inn á laugardaginn kannski, sé til.
Þetta er allt. Þið fenguð allavega nóg af myndum í þetta skiptið vona ég! Það er svo slatti af fleiri myndum á facebook. Vona að þið hafið nennt að lesa þetta og comment eru alltaf vel þegin.
-Þóra Margrét
Long time no see!
Ég er enn á lífi þó ég hafi ekki bloggað í langan tíma. Ýmislegt hefur gerst á þessum langa tíma þó mér finnist eins og ekkert hafi gerst.
Ég gerði ekki mikið helgina eftir síðasta blogg. Mestallur laugardagurinn fór bara í chill og svo skutlaði hostpabbi minn mér til Titirangi á mótorhjólinu. Fékk þaðan far til Piha með vini hennar Elju. Það var gott verður í fyrsta skipti í marga daga svo við vorum frekar heppin. Fleiri krakkar komu og við keyrðum niður á ströndina á pallbíl - tveir inni í bílnum og svona 5-6 manns á pallinum. Fundum það til að halda strandarpartý um kvöldið og fórum svo og fengum okkur að borða. Útsýnið frá veitingastaðnum var æææði.

Ekkert svo góð mynd en þið sjáið útsýnið smá. Þetta eru btw vinur Elju og Berk.
Partýið um kvöldið var svo bara allt í lagi. Ef við hefðum ekki kveikt eld hefðum við örugglega frosið úr kulda samt. Það var mjög gaman en þegar leið á kvöldið fór þetta að verða pínu leiðinlegt svo við fórum bara heim um 12 haha. Ég gisti hjá Elju en allir hinir tjölduðu við ströndina sem er bannað. Morguninn eftir voru þau víst rekin burt af eina öryggisgaurnum sem vinnur í Piha. Ég eyddi svo sunnudeginum í ekki neitt bara ef ég man rétt.
Á mánudeginum var svo Labour Day þannig það var frí. Já, 1. maí er í október á Nýja-Sjálandi! Ég held þau reyni að hafa allt öfugt hérna og þeim tekst það bara nokkuð vel! Man samt ekkert hvað ég gerði. Fór allavega með tölvuna mína í viðgerð þar sem það var alltaf sama error draslið að poppa upp. Reddaði því og man svo ekkert hvað ég gerði restina af deginum.
Svo tók skólavika við. Næstsíðasta vikan mín fyrir sumarfrí! Verð að viðurkenna að mér leiddist frekar þessa viku því allir voru bara í upprifjun og svoleiðis. Í ensku og efnafræði gerði ég alveg frekar flott listaverk með yfirstrikunarpennum á milli þess sem ég krotaði á möppuna mína og starði út í loftið. Held að það hafi ekkert merkilegt gerst þessa skólaviku.
Um helgina var svo Halloween! Halloween er ekkert svo stórt hérna. Fyrir flestum er þetta bara góð ástæða til að halda partý. Sá samt alveg nokkra krakka í grímubúningum að trick n treat-a. Ég fór hins vegar ekki í neitt partý. Kvöldið var ekki alveg dautt samt þar sem hostsystir mín bauð mér að koma með sér og vinum sínum að horfa á kappakstur. Vorum mætt þangað um kl 5 og sátum svo og biðum í 2 klst. Þetta byrjaði svo loksins. Vanalega verður maður víst allur í drullu við að horfa á þetta en þar sem þetta var fyrsti kappakasturinn á þessu season-i þá var brautin ennþá slétt. Þetta voru allskonar mismunadi bílar og mismunadi keppnir. Nokkrir árekstrar og veltur og svona, líklegast það skemmtilegasta við þetta haha. Þetta var fínt bara en fulllangt fannst mér. Hefði hins vegar ekkert á móti því að prófa að vera í einhverjum af bílunum sjálf!
Á sunnudeginum vorum við í mínum chapter svo búin að plana að fara í laser strike en þegar við komum á staðinn komumst við að því að strákarnir hefðu gleymt að bóka! Flestir fóru bara heim en ég, Elja (Belgía), Philipp (Þýskaland) og Berk (Tyrkland) löbbuðum bara aðeins um í miðbænum og skelltum okkur á Subway. Í fyrsta skipti í laaangan tíma var sól og steikjandi hiti. Góð tilbreyting frá rigningu og kulda.
Svo var það síðasta skólavika ársins! Hún leið frekar hægt sem mér fannst bara allt í lagi. Frekar sorlegt eitthvað að skólinn hafi verið að klárast, sérstaklega þar sem margir vinir mínir koma ekki aftur á næsta ári heldur ætla beint í háskóla eða vinnu núna. Eins og vanalega rigndi næstum alla vikuna. Á fimmtudeginum hélt ég svo fyrirlestur um Ísland í travel tíma fyrir alla hina 10 eða svo sem eru í þeim bekk. Fékk mikið hrós fyrir það. Kennarinn minn hafði samt voða miklar áhyggjur af efnahagsástandinu heima (ég talaði samt ekki um kreppuna í fyrirlestrinum). Hún talaði svo víst við hostmömmu mína sem sagði mér svo að hún hefði svo miklar áhyggjur af því að ég ætti ekki nógan pening til að ferðast. Svona til að bjarga mér úr þeim vanda (sem var samt ekkert stór vandi) þá bauð hún mér að koma til sín og þrífa hjá sér gluggana fyrir smá pening! Fannst það alveg magnað. Mér fannst þetta ótrúlega sætt af henni og kunni ekki við það að segja nei. Ég er semsagt að fara til kennarans míns fljótlega til að þrífa hjá henni baðherbergisgluggana! Haha frekar kjánalegt og mér finnst það ótrúlega fyndið en ætla mér nú samt að gera þetta með glöðu geði!
Föstudagurinn var svo síðasti skóladagur ársins og síðasti skóladagur marga vina minna. Þennan dag þurftum við bara að fara í 3 og hálfan tíma því seinni hluti dagsins fór í verðlaunaafhendingu. Maður fannst samt eitthvað svo sterkt að þetta væri síðasti dagurinn fyrir marga. Allir að kveðjast, skrifa á skólabolina hjá hvor öðrum og allir með myndavélar og svona. Year 13 krakkarnir drösluðu svo ruslatunnunum uppá þak og festu á þær borða sem þau voru búin að skrifa eitthvað á. Frekar fyndið og mikil stemning í hádegishléinu. Svo tók við laaangt assembly þar sem voru veitt verðlaun fyrir næstbestan og bestan árangur í hverju fagi hjá hverjum bekk (year 11, 12 og 13) auk stærri verðlauna og skólastyrkja. Svo voru einhver skemmtiatriði og ræður og svona, margt mjög flott. Annað en alla hina daga vikunnar var sól. Fyrir 5 eða 6 árum síðan tók einhver upp á því að skjóta flugeld inn í salinn á meðan verðlaunaafhendingin var í gangi og það fór þannig að ein stelpa endaði uppá spítala með alvarleg brunasár. Salurinn var þess vegna lokaður svo við sátum þar inni í 2.5 klst í steikjandi hita.
Frekar þreyttar eftir verðlaunaafhendinguna. Skólabúningurinn minn er btw frekar stór þar sem ég fékk hann lánaðan hjá skólanum en keypti hann ekki sjálf.
En júújú svo er bara komið sumarfrí! Enginn skóli fyrr en í byrjun febrúar! Allir hinir eru hins vegar í upplestrarfríi í viku og svo byrja prófin. Ég byrjaði sumarfríið mitt á að fara til Helensville og hitta gömlu hostfjölskylduna mína. Fórum að sjálfsögðu á mótorhjólinu. Þetta var bara stutt stopp. Fannst samt rosalega gott að hitta litlu „systur" mínar þar aftur, og strákana líka auðvitað J Svo brunuðum við bara til baka. Það er æðisleg tilfinning að sitja aftan á mótorhjóli á hraðbrautinni, á um 120 km/klst! Svo þessi ferð var klárlega þess virði haha! Um kvöldið fór ég svo með Kristy og Amöndu á flugeldasýningu. Risastórt, haldið á svona íþróttaleikvangi. Byrjaði með einhverju ljósashowi á grasinu í takt við tónlist. Svo byrjaði laser show og það var í gangi meðan flugeldarnir voru. Og vá, verð að segja að þetta var mun betra en sýningarnar á menninganótt haha. Auðvitað ekkert eins og íslensk áramót samt! En þetta voru a.m.k. 20 mínútur af mjög flottri sýningu og meira að segja í takt við tónlist!
Ég vaknaði svo eldsnemma á sunnudagsmorgun til að fara til Motuihe með AFS - aftur. Það er eyja ekki langt frá Auckland. Eins og alltaf þá var tilgangurinn með ferðinni community service. Í þetta skiptið vorum við að grafa stíg sem var alveg frekar mikil vinna. Ég rifjaði bara upp gamla unglingavinnutakta og gerði þetta með léttum leik. Eða okei.. það er lygi. Ég rifjaði samt upp gamla unglingavinnutakta en í þeim felsta meira að gera ekki neitt og bíða eftir hádeigshléinu (No worries samt, við kláruðum stiginn og ég hjálpaði til.) Eftir hádegismat fórum við svo á ströndina. Sjórinn er enn frekar kaldur en við syntum nú samt alveg frekar langt út. Reyndum svo að draga fleira fólk út í sjóinn og svona. Philipp tók svo tvisvar upp á því að henda mér í sjóinn þegar ég var nýkomin í þurr föt. Í fyrsta skipti blotnuðu bara lappirnar en í annað skipti fór ég næstum öll á kaf. Gaman að því! Var allavega með tvö sett af aukafötum með mér svo það var allt í góðu. Sáum svo stingskötu! Í annað skipti sem ég sé svoleiðis og í þetta skipti var það eftir að ég hafði verið að synda. Hún hefði sem sagt getað verið þar á meðan við vorum í sjónum!

Philipp, ég og sandkastalinn okkar. Ég er í svona miklum fötum því mér varð frekar kalt eftir að hann henti mér í sjóinn.
Mhm, mjög fallegt þarna á eyjunni! Allir að labba til að sjá skötuna.
Sam og skatan. Sést ekkert svo vel en hún var nokkuð stór.
Svooo er það þessi vika. Við Elja eyddum nokkrum klukkustundum á miðvikudaginn í að labba um miðbæinn og mallið þar og í gær fórum við Michelle í bíó á 2012. Aaalgjör sýra ef þú spyrð mig haha! Samt skemmtilegt að horfa á hana en hún er algjört rugl haha. Það er samt annað sem ég hef tekið eftir. Hér fara margir í bíó á daginn bara. T.d. fórum við klukkan eitt! Eitthvað sem ég gerði aldrei heima, er vön að fara bara í bíó á kvöldin. Fór meira að segja í bíó klukkan 11 um daginn með stelpunum úr Kaipara. Kannski er það bara einhver siður hjá þeim þarna í sveitinni?
Eeeeen að allt öðru! Daginn sem ég kom heim af camp var kominn pakki til mín frá Íslandi. Ég steingleymdi að segja frá þessu í síðasta bloggi! Ég fékk þar bæði Næturvaktina og Dagvaktina og svo auðvitað nammi. Fór með smá í skólann til að leyfa fólkinu að smakka. Flestum fannst Djúpur í lagi en það sem kom mér mest á óvart var að þeim fannst flestum Kúlusúkk ógeðslegt! Þeim fannst það of saltað. Þeim sem fannst það gott fannst það hins vegar mjög gott svo pokinn var ekki lengi að tæmast. Dýrin á heimilinu elska mig líka meira en áður eftir að ég leyfði þeim að smakka harðfisk! Ótrúlegt en satt þá fannst flestum í fjölskyldunni hann bara nokkuð góður. Í gær fékk ég svo nýjan pakka sem þýðir meira kúlusúkk, þristar og fullt af súkkulaði ásamt fleiru. Við tókum einn kúlusúkkpokann með okkur í bíó og sá poki er búinn núna. Ekki tók það langan tíma! Ein súkkulaðiplatan er svo næstum búin. Ekki skrýtið að nýsjálendingar sé þriðja feitasta þjóð í heimi! Restin af namminu fer allavega með mér til Christchurch á þriðjudaginn! Við Guðmunda getum þá orðið eins og nýsjálendingar og fitnað saman. Vil samt taka það fram að ég hef ekki tekið eftir það miklu af feitu fólki hérna en þetta er samt víst þriðja feitasta þjóð í heimi. Kannski þau telji kindurnar og kýrnar með?
Veit ekki hvað ég get sagt ykkur meira. Mér finnst allt orðið svo eðilegt hérna og lífið hér er orðið hversdagslegt bara. Er eiginlega hætt að taka eftir hlutum sem mér fannst ótrúlega skrýtnir fyrstu vikurnar eða mánuðina. T.d. að sjá fugla inní búðum eða mollum er bara mjög eðlilegt. Þeir koma meira að segja inn í skólastofurnar.
Svo er það Vegemite og Marmite. Það er svart og saltað dót sem fólk smyr á brauð. Í dag fékk ég til dæmis brauð með Marmite og kartöfluflögum í hádegismat! Ég get ekki enn borðað þetta, finnst þetta alveg frekar vont! Svo var fólk að kvarta undan því að Kúlusúkk væri saltað!? Ég er samt ákveðin í því að geta fundist þetta gott áður en ég fer heim, hvernig sem ég ætla nú að fara að því!
Annars held ég að það hafi ekki farið framhjá neinum að McDonalds er hætt á Íslandi. Þetta kom í sjónvarpsfréttunum hér, á fréttasíðum og í dagblaðinu. Sé svo eftir því að hafa ekki klippt fréttina út! Annars get ég keypt McDonalds í 7 mánuð í viðbót. Mér er nokkuð sama samt og ég á eftir að sakna Wendy's meira haha. Hér er linkur á fréttina: http://www.nzherald.co.nz/business/news/article.cfm?c_id=3&objectid=10605592
Fólk er líka alltaf forvitið um veðrið hérna. Það á víst að vera komið sumar og mér skilst að sumarið sé komið í mörgum landshlutum. Hér er hins vegar mikil rigning ennþá og oft ískalt. Það er samt að lagast en það stefnir víst í kalt sumar miðað við síðustu ár. Það er samt erfitt að spá fyrir um það núna.
Ég hugsa að þetta sé allt í þetta skiptið. Ég fer til Christchurch á þriðjudaginn í 10 daga og ég get ekki beeðið! Tíminn líður svo ótrúlega hratt hérna. Finnst svo stutt síðan ég bókaði flugið mitt þangað og svo er ég bara að fara núna! Ætlum svo að keyra niður til Queenstown um helgina og verðum þar í 2 daga. Ef ég næ ekki að blogga meðan ég er hjá Guðmundu þá blogga ég um alla ferðina þegar ég kem til baka. Guðmunda kemur svo auðvitað með mér hingað og verður hér í 10 daga. Gaaaman? Já!
Bless í bili
-Þóra Margrét
